fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég vil staldra við orð hv. þingmanns um heimilin. Mér finnst skorta mjög rök hjá hv. þingmanni um í hvaða samhengi og í hvaða merkingu hann notar það orðalag, augljóslega í pólitík, að ekki sé einu orði minnst á heimilin. Ef við hugsum þetta út frá efnahagshringrás og þeim aðgerðum sem við höfum verið að fara í pakka eitt og pakka tvö, hverjar eru grunnstoðir í efnahagshringrásinni? Það eru heimilin og það eru fyrirtækin. Fyrirtækin eru háð heimilunum um vinnuafl og heimilin eru háð fyrirtækjunum um launagreiðslur og svo verður til verðmætasköpun þegar vinnulaun eru notuð til að greiða fyrir vöru og þjónustu. Það er verið að verja þessa efnahagshringrás og þar með heimilin. Ég veit að hv. þingmaður veit þetta og þess vegna sakna ég þess, þegar svona orð eru sett fram, að þau séu sett í samhengi og hafi merkingu því að það er sannarlega verið að bregðast við. Við erum í fjármálakrísustjórnarástandi, efnahagskrísu og hún er tímabundin. Hversu langt hún nær vitum við ekki. Það eina sem allir eru sammála um, alþjóðlegir greiningaraðilar og fleiri, þær þjóðir sem eru að kljást við það sama, er að það er fullkomin óvissa. Þá er ekkert óeðlilegt að við tökum þetta svona í formi fjáraukalaga og í öruggum skrefum meðan greiðist úr óvissunni.
Talandi um samhengi og merkingu, hv. þingmanni hefur orðið tíðrætt um prósentur og talar um 1 prósentustig og svo einhvern sandkassaleik. Ég kem að því í seinna andsvari, en þar finnst mér líka vanta merkingu og samhengi í þetta prósentustig. Ég get flaggað hér öðrum prósentum, mun gera það í seinna andsvari.