fjáraukalög 2020.
Frú forseti. Ég var að vekja athygli á því sem vakti mína athygli, eftir að hafa lúslesið þennan aðgerðapakka tvö, að ekki var minnst einu orði á heimilin. Mér finnst það bara segja sína sögu um hver fókusinn er. Að sjálfsögðu veit ég að fólk vinnur hjá fyrirtækjum og verið er að gera ýmislegt sem er jákvætt, svo fullrar sanngirni sé gætt, en það skiptir máli hvernig fólk nálgast hlutina. Það væri hægt að ráðast í ýmsar aðgerðir til að bæta stöðu heimilanna, bæta tekjufallið sem þau eru að verða fyrir, eins og að hækka atvinnuleysisbætur, eins og að hið opinbera komi með myndarlegri hætti að frestun greiðslu af lánum án kostnaðar sem lendir á neytendum. Það væri hægt að fresta nauðungarsölum. Það væri hægt að efla störfin sem fólk er að missa eða verður minna af o.s.frv. Vinkillinn ætti að vera heimilismiðaður en hann er það ekki.
Annað sem gleymist svolítið í þessu eru litlu fyrirtækin. Þau fá fyrst og fremst úrræði til að taka lán. Hvar er beini stuðningurinn fyrir litlu fyrirtækin sem neyddust til að loka vegna tekjufalls? Hann er hvergi. Hvar er myndarlega innspýtingin til að fjölga störfum í raun og veru? Þess vegna er ég að tefla fram þeirri hugmynd minni um að fjölga opinberum störfum, gera meira aðlaðandi að vinna hjá hinu opinbera. Við stjórnum hinu opinbera. Við erum vinnuveitandi hins opinbera fyrir hönd skattgreiðenda. Þetta er í alvörunni praktísk leið til að ráðast í. Af hverju fjölgum við ekki listamönnum á listamannalaunum eins og ég gat um áðan? Þetta eru í alvörunni praktískar og raunverulegar leiðir og að sama skapi leiðin með nýsköpunarsjóðina. Þeir búa til störf. Mér finnst þetta bara vera of aumt og vesælt sem okkur er boðið upp á í pakka eitt og tvö. Þetta er ekki allt vitavonlaust, að sjálfsögðu ekki, en ég held að það skorti líka bara meiri aðkomu. Ef ég skildi þingflokksformann Vinstri grænna rétt í sjónvarpsfréttum í fyrradag þá fengu stjórnarflokkarnir kynningu á tillögunum í gær. Það væri ágætt að fá þær upplýsingar frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins (Forseti hringir.) hvort það sé rétt. Þessar tillögur eru ekki mótaðar í gegnum stjórnarandstöðuna en eru þær ekki mótaðar (Forseti hringir.) hjá þingflokkum stjórnarflokkanna? Ég held að hugmyndir batni eftir því sem fleiri koma að þeim. Þá myndast líka meiri sátt um þær, frú forseti.