fjáraukalög 2020.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Ég byrja kannski bara þar sem hann fór frá í sinni ræðu. Það er einmitt mergurinn málsins, og það snýr að þeim sandkassaleik sem hv. þingmaður varpaði fram í framsöguræðu sinni, að þegar við tókum pakka eitt vann nefndin öll saman og tillögurnar jukust um fjórðung — og menn klifa á 1 prósentustigi — frá upphaflegum tillögum hæstv. ríkisstjórnar. Það má líka minna á það að fjárfestingarpakkinn í þeirri tillögu er 33% af fjárfestingum gildandi fjárlaga fyrir heilt fjárlagaár, þriðjungur. Ef við tökum heildarumfang aðgerða hingað til og söfnum því saman, umfang aðgerða, ekki bein útgjöld, þetta hefur allt áhrif, þá er það þriðjungur af gildandi fjárlögum. Við segjum stöðugt að um leið og við tökum þetta í öruggum skrefum þá verðum við að meta stöðuna. Það er verið að gera það daglega, í öllum þingflokkunum. Af því að hv. þingmaður fór inn á það hvernig þetta væri mótað þá er stöðug umræða frá degi til dags þar sem við erum að vinna úr tillögum, móta tillögur í umræðum, hingað inn í þingsal, inn í nefndirnar og þannig verðum við bara að vinna þetta áfram.
Ég frábið mér orð um sandkassaleik í neyðarástandi. Það er bara alls ekki meiningin. Vinnan í hv. fjárlaganefnd við pakka eitt var sameiginleg (Forseti hringir.) alla leið og þar breyttust tillögur um fjórðung. Ég met það svo að við höfum í sameiningu samþykkt þær tillögur þó að stjórnarandstaðan hafi síðan komið inn í þingsal með fjölmargar aðrar tillögur.