fjáraukalög 2020.
Frú forseti. Það sem ég átti við með sandkassaleik er að stjórnarþingmenn felldu allar okkar tillögur. Við samþykktum allar ykkar tillögur. Nú dúkka upp tillögur sem við erum nýbúin að leggja fram og þið fellduð. Það finnst mér vera sandkassaleikur, að fella tillögur bara vegna þess að þær koma frá stjórnarandstöðu í þessum sal. Nú legg ég til, þar sem málið er komið fram, að við snúum bökum saman í fjárlaganefnd og reynum að bæta það eins og við gerðum síðast. Það er rétt hjá hv. þingmanni, málin batna í meðförum þingsins. Arðgreiðslubannið kom eftir að þingmenn úr mörgum flokkum sögðu að það væri fullkomlega óeðlilegt að fyrirtæki sem nytu fyrirgreiðslu væru að greiða sér arð. Það að upplýsa um hverjir fá brúarlánin kom ekki frá ríkisstjórninni, það kom frá okkur. Já, við skulum bara snúa bökum saman og bæta ansi hressilega í, heyra í hagsmunaaðilum og gera aðeins meira. Munum að við höfum fjárveitingavaldið, við skulum ekki bíða eftir leyfi frá fjármálaráðherra um hverju við megum verja í þetta. Í fullri alvöru, við skulum ekki gera það. Það er virkilega góð hagfræði og pólitík að snúa bökum saman, hægri, vinstri og miðjan, og gera meira því að auðvitað veit ég að markmið okkar er það sama. Við viljum milda höggið, verja störf, búa til störf. (Forseti hringir.) Þá skulum við bara gera það með myndarlegum hætti öll saman. Ég held að þjóðin kalli eftir því.