150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[15:49]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við erum bara ekki sammála um nálgun, ég held að það sé innihald þess sem kom fram í andsvörum við annan þingmann áðan og svo núna. Ég er t.d. ekki hlynnt borgaralaunum sem er ákveðin vísun í að afhenda fólki peninga í staðinn fyrir að halda fyrirtækjum og starfsemi gangandi sem eru knúin áfram af fólki sem hefur þá tækifæri til að viðhalda ráðningarsambandi. Við erum hér líka með töluvert af því sem heitir nýsköpun og verið að stuðla að því að hægt sé að búa til ný störf. Í grunninn er það þannig að ef fyrirtæki hverfa og fólk verður eftir, eins og hv. þingmaður orðaði það, er það ein leið og í hana geta allir sótt. Það er ekki endilega bundið einhverjum tilteknum aðilum. Eins og ég segi er ég í grunninn ósammála þeirri nálgun en ég tek undir með þingmanninum um að það er ekkert annaðhvort eða í því. Ég er ekki sammála því að endilega sé betur farið með fjármuni að styðja ekki við ráðningarsamband fyrirtækja við fólk heldur afhenda fólki peningana beint.

Ég leyfi mér að taka undir að sannarlega munu einhverjir falla á milli í aðgerðunum. Það er þá ekki í fyrsta skipti og verður ekki í síðasta skipti. Líklega verður því miður í öllum okkar kerfum alltaf fólk sem passar ekki inn í þá ramma sem við reynum að setja. Við gerum þó okkar besta og höldum áfram að reyna að finna glufur og stoppa í þær.