150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[17:16]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Það er búið að vera einkar ánægjulegt að fylgjast með þessari umræðu, hún er búin að vera hófstillt og full af hugmyndum. Það leiðir mig að því sem ég lét mér um munn fara um daginn í viðræðum við hæstv. forsætisráðherra. Ég sagði við hæstv. forsætisráðherra að hér í salnum væri allnokkurt vit, þó nokkur menntun, mikil reynsla. Hvers vegna kallar ríkisstjórnin ekki þessa hæfileika til samstarfs í stað þess að leggja fram sjálf og ein í sífellu tillögur? Þær hafa vissulega margar tekið jákvæðum breytingum í nefndum, en sumar þeirra, eins og núna, eru svipaðar tillögur og ríkisstjórnin felldi fyrir þremur vikum vegna þess að þær komu ekki úr hennar ranni þá. Þetta, herra forseti, er barnaskapur og við höfum ekki efni á því núna að stunda barnaskap. Það þarf samvinnu og samráð. Það er búin að vera mjög góð samstaða í þessum sal við að afgreiða þau brýnu mál sem ríkisstjórnin hefur komið fram með. En við höfum jafnframt bent á það að innihald margra þeirra sé of lítið, of seint. Og viðbrögðin núna, ekki bara okkar heldur sem við heyrum hvarvetna af eftir kynningu ríkisstjórnarinnar í gær, eru einmitt þau, of lítið, of seint.

Það eru margir sem hafa tekið til máls um þetta. Það eru t.d. einyrkjar sem reka ferðaþjónustu á sinni eigin kennitölu. Þeir virðast ekki vita sitt rjúkandi ráð. Eiga þeir að þiggja lokunarstyrk? Geta þeir það? Eiga þeir að segja sig á atvinnuleysisbætur strax sjálfir? Það eru ýmis svona álitamál uppi. Annar mjög mikilvægur þjónustuþáttur er leigubílar. Leigubílstjórum hefur jafnvel verið ráðlagt að leggja inn atvinnuleyfi sín. Atvinnuleyfin eru lögð inn í fjóra mánuði og ef þau hafa verið lögð inn getur hver sem er komið og keypt þau eða öðlast þau. Þeir geta sem sagt misst þau fyrir fullt og fast með því að leggja þau inn. Í sjálfu sér er enginn vandi ef þeir færu á hlutabótareglu, það er enginn vandi að fara yfir þær litlu tekjur sem leigubílstjórar t.d. afla sér á hverjum tíma, nánast öll þeirra inntekt er í gegnum rafræn viðskipti. Það er því engin hætta á að þar sé um einhver undanskot að ræða. — Ég gleðst yfir því að sjá fjármálaráðherra, ég veit að hann er búinn að fylgjast með úr öðrum sal.

Ég ætla þá að ítreka það og beina þeim orðum sem ég hóf mál mitt á einnig til hans að hér í salnum er allnokkurt vit, mikil reynsla, mikil þekking. Það er ríkisstjórninni og landinu öllu og öllum íbúum þess til farsældar að ríkisstjórnin kalli þennan hóp meira til samráðs en verið hefur og strax við undirbúning þeirra mála sem eru í gangi. Mér skilst að í Danmörku sé þverpólitísk nefnd að störfum sem taki ákvarðanir í málum sem snerta þetta ástand og í Noregi er líka þverpólitísk nefnd. Hugmyndir stjórnarandstöðunnar margar hverjar eru svo góðar að þær hafa dúkkað upp núna af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég segi þá aftur: Af hverju ekki að grípa þær strax? Hvers vegna var t.d. þessi ágæta tillaga um sérstakar álagsgreiðslur til hjúkrunarfólks, sem á það svo margfalt skilið, sem var lögð fram fyrir þremur vikum, felld? Svo dúkkar hún upp aftur núna, góðu heilli. En hvers vegna var hún ekki bara samþykkt fyrir þremur vikum síðan? Mér finnst ríkisstjórnin enn þá, með mikilli virðingu, vera að elta ástandið. Hún er að elta ástandið með því m.a. að taka ekki nógu djörf og stór skref eins og t.d. skrefið í gær sem var mjög stutt, því miður. Þetta er ekki niðurrifstal. Þetta eru bein áköll sem við höfum fengið, margir þingmenn, frá almenningi og mörgum sem eiga núna í erfiðleikum um að þeim finnst ekki nógu langt gengið og ekki nóg að gert.

Síðan er eitt furðumál sem kemur hér upp, sem er stofnun sérstaks matvælasjóðs. Ég held að einmitt á þessum tímapunkti eigum við ekki að vera að dreifa kröftunum og búa til eitt apparat enn fyrir fólk að sækja í. Af hverju í ósköpunum? Af hverju leggja menn þetta fé ekki bara inn í þá sjóði sem fyrir eru? Þá kem ég að öðru sem líka vantar inn í það, að mér finnst, sem ríkisstjórnin hefur verið að gera núna undanfarandi. Ég skil það náttúrlega að við erum öll standandi í sama pollinum og við erum öll að reyna að ausa svo það fari ekki upp fyrir stígvélin. En mér finnst vanta mjög upp á það að ríkisstjórnin horfi til þess tíma þegar þessu ástandi linnir. Hvers vegna? Það er sérstaklega hvað varðar fjárfestingar. Ég hef ekki séð enn þá tillögu frá ríkisstjórninni, og ég verð þá bara leiðréttur ef það er rangt hjá mér, sem er til þess fallin að örva fjárfestingu inn í framtíðina. Hvað er ég þar að tala um? Jú, t.d. uppbyggingu í landeldi, fiskeldi, uppbyggingu í garðyrkju. Ég tel reyndar að þessi salur ætti að samþykkja það einróma að rafmagn til garðyrkju sé verðlagt með sama hætti og til annarrar stóriðju í landinu. Ef við myndum gera það og myndum örva fjárfestingu t.d. bara á þessu eina sviði, þá erum við í fyrsta lagi að skapa mikið af störfum. Við erum að gera sjálf okkur enn færari um að afla eigin fæðu. Við erum með því að stíga græn skref, við erum að stíga hagræn skref, við stígum skref í þá átt að fara vel með þann gjaldeyri sem við öflum. Það er ekki vinningur, vinningur, vinningur heldur fimm sinnum vinningur að fara í aðgerðir eins og þessar og ég sakna þeirra. Ég bíð spenntur eftir að heyra og sjá einhverjar aðgerðir frá ríkisstjórninni þar sem hún annaðhvort myndar sjóð, setur til hliðar fé til að örva fjárfestingu í ákveðnum greinum, t.d. mannfrekum atvinnugreinum þar sem við vitum að er þörf. Í matvælageiranum er þörf, sífelld þörf. Við getum einnig klárlega flutt út afurðir sem yrðu til með meiri framleiðslu hér innan lands, bæði hvað varðar garðyrkju og grænmetisrækt og landeldið. Við getum líka flutt út meira af okkar hefðbundnu afurðum. Ég ætla bara að vona að eitthvað af þeim 500 milljónum sem hér eru rati núna í alvörumarkaðssetningu á hefðbundnum landbúnaðarafurðum, t.d. hér innan lands sem er besti markaðurinn. Ég vona líka að eitthvað af þeim rati í mjög athyglisverðar hugmyndir sem hafa komið upp um útflutningsmöguleika á íslensku smjöri sem er selt núna, bæði innan lands og erlendis, á 10% af því verði sem dýrasta smjör í heimi er selt á. Við eigum að gera prufu á því, vísindalega rannsókn á innihaldinu, til að geta markaðssett þessa afurð við hliðina á því besta sem gerist á margföldu verði miðað við verðið í dag.

Við erum jú núna að rýra afkomu ríkisjóðs sjáanlega um einhverja framtíð, en ég lít þannig á, herra forseti, að ef við högum okkur skynsamlega núna og tökum, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur sagt, stærri skref en minni, þó að það sé aðeins að snúast í andhverfu sína akkúrat núna, þá erum við með því að fjárfesta í framtíðinni. Með því að ríkissjóður taki á sig ákveðið áfall þessi misserin erum við að fjárfesta í framtíðinni. Við gerum fólki og fyrirtækjum kleift að vinna sig á þann stað að þau verði góðir skattgreiðendur aftur. Ég verð að hrósa hv. formanni fjárlaganefndar fyrir orð sem hann flutti hér í dag, og ég tek svo heils hugar undir með honum: Við erum öll ríkissjóður. Þetta á að setja á bol og selja til hagnaðar fyrir ríkissjóð vegna þess að það er akkúrat mergurinn málsins. Við erum öll ríkissjóður. Þetta segi ég sem gamall fjárgæslumaður sama sjóðs. Mér þykir vænt um ríkissjóð. Við eigum að bera virðingu fyrir honum og við eigum að bera virðingu fyrir því að það á að greiða til hans það sem honum ber þegar svo árar.

Það leiðir hugann að því að við eigum enn þá eftir að sjá, kannski gerist það núna á næstunni, tillögur um aðhald í ríkisfjármálum, þ.e. í ríkisrekstrinum sjálfum. Ég talaði áðan um að við dreifðum kröftum. Við erum núna að tala um það að við þurfum að efla veg ferðaþjónustunnar strax og þessu ástandi linnir og gera ferðaþjónustunni kleift að liggja eins og björn í híði og rísa svo upp þegar betur árar. Ríkið er með líklega þrjá eða fjóra fjárlagaliði þar sem ferðamennskan er undir. Það er Ferðamálastofa, það er Íslandsstofa, það eru markaðsstofur, fjárfestingarsjóðir. Af hverju er þetta ekki á einum stað þannig að menn hafi heildaryfirsýn? Það er kannski það sem okkur öll skortir núna, standandi í sama polli, ausandi til þess að það fari ekki ofan í stígvélin hjá okkur. Okkur vantar nauðsynlega yfirsýn. Þess vegna þurfum við að taka þar á.

Það eru tvö, þrjú atriði í viðbót. Þetta er svolítið sundurlaust, ég viðurkenni það, ég er bara fara yfir þetta heildstætt. En það eru tvö atriði sem ég vildi mjög gjarnan taka á. Í þessu ágæta fjáraukalagafrumvarpi eru 15 milljónir til löggæslu. Ég ætla ekki að vanþakka það að ráða annaðhvort fjóra menn í þrjá mánuði eða þrjá menn í fjóra mánuði til að vinna að barnaverndarmálum og vinna gegn heimilisofbeldi, sem, nota bene, fer ekki bara fram á dagvinnutíma, svo það sé sagt. Til að ná árangri á þessu sviði hefði náttúrlega þurft að ráða sólarhringsfólk. Þá minni ég enn á það að einn sólarhringsmaður í lögreglu er sex stöðugildi. Þannig að þrátt fyrir góðan ásetning og 15 milljónir: Nei, þetta er ekki nóg. Og talandi um lögregluna, herra forseti, þá er hún í framvarðasveit okkar og hún á eftir að verða í framvarðasveit okkar þegar heilsufarsástandinu léttir vegna þess að þá taka við efnahagserfiðleikarnir og þá tekur við togstreitan og þá taka við erfiðleikarnir sem lenda fyrst og fremst á lögreglunni til að byrja með. Hvernig er ríkið að verðlauna þessa stétt þessa dagana? Með því að bjóða á kjarasamningsfundum sífellt sama tilboðið aftur og aftur, tilboð sem er ekki aðgengilegt fyrir lögreglumenn en því er varpað fram til þeirra aftur og aftur. Gömul álitamál allt frá 1987 fást ekki rædd. Hvers vegna? Gæti það verið, herra forseti, vegna þess að þessi stétt hefur ekki verkfallsrétt? Það er hægt að veifa framan í hana tilboðum sem eru móðgandi æ ofan í æ aftur og aftur sömu tilboðin af því að hún hefur ekki verkfallsrétt. Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra fyrst hann er hér staddur, sem ég gleðst yfir, að beita sér fyrir því að nú þegar verði samið við lögreglumenn, þessa framvarðarsveit sem við stólum svo mjög á. Þetta er sama stéttin og varði þetta hús fyrir rúmum tíu árum með lífi sínu. Og svona komum við fram við hana núna. Mér finnst það, herra forseti, ekki sæmandi, svo ég segi það bara hreint út.

Þótt ég hafi drepið á mjög mörgum þáttum í þessu vona ég samt að ríkisstjórnin taki sérstaklega til sín að vinna nánar með stjórnarandstöðunni. Ég stakk upp á því við hæstv. forsætisráðherra og skal stinga upp á því við hæstv. fjármálaráðherra nú að haldinn verði hugarflugsfundur, þverpólitískur hugarflugsfundur, þar sem menn leiti bestu lausna í þeim málum þar sem við höfum ekki fundið þær enn þá og þau eru allmörg, herra forseti. Betur sjá augu en auga og það er ekki veikleiki að sækja sér ráð til annarra og hlusta á góð ráð annarra, það er styrkleiki. En til þess þarf kjark og töluvert sjálfstraust. Ef það er virkilega svo að ríkisstjórnin treystir sér ekki til þess að taka við góðum ábendingum og ráðum frá stjórnarandstöðunni þá verður að líta svo á að ríkisstjórnin sé hvort tveggja, ja, ekki kjarklaus en hafi ekki nógu mikinn kjark og búi ekki yfir nógu miklu sjálfstrausti. Í þessari stöðu núna er það afar slæmt, herra forseti.