fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Ég get strax svarað því til að vandinn sem hefur skapast er að störf í einkageiranum hafa tapast. Það er ætlast til að við komum með meðul við vandamálum sem endurspegla rót vandans. Það er alveg hárrétt og sömuleiðis er ástæða til að hafa áhyggjur af því að fyrirtæki sem hafa verið tekjulaus en setið uppi með fastan kostnað í langan tíma geti orðið of skuldsett eftir þetta tímabil eða jafnvel ekki ráðið við það.
Varðandi ferðaþjónustuna dugar auðvitað ekki að segja bara út af fyrir sig að þetta sem við erum að gera mæti ekki væntingum allra. Við verðum að spyrja dýpri spurninga en það, við verðum t.d. að spyrja: Hversu lengi er eðlilegt að ríkið taki hluta launakostnaðar hjá fyrirtækjum sem eru tekjulaus og verða tekjulaus um margra mánaða skeið? Er það lausn fyrir slík fyrirtæki að halda þeim í hlutastarfaleiðinni og framlengja það úrræði? Ég held að við þurfum að vera dálítið heiðarleg í þessari nálgun. Jafnvel þó að það myndi henta sumum fyrirtækjum að fá fullan ríkisstuðning, fá stuðning úr ríkissjóði, til að komast í gegnum slíkt tímabil er ekkert endilega víst að það sé besta lausnin. Við gætum þurft að laga t.d. hlutastarfaleiðina að þessum breytta veruleika, því að krísan er að lengjast, og koma með ný úrræði. Ég horfi sérstaklega til þess að styðja fyrirtæki sem standa skyndilega frammi fyrir þeirri ótrúlegu stöðu að allar tekjurnar eru horfnar og þau bera ábyrgð á því að greiða full laun allan uppsagnarfrest hjá öllum starfsmönnunum. Þetta er staða sem ég man ekki til þess að hafi áður komið upp. Í þeim tilvikum þar sem svona hefur komið upp, t.d. í fiskvinnslu, höfum við sett sérstök lög til að takast á við það og þess vegna er mjög erfitt að koma á hlaupum með svör við þessu. Þetta er eitt af stóru verkefnunum sem bíða okkar. Að öðru leyti segi ég að vitaskuld hefur þingið hér fullt forræði á málinu og getur gert breytingar. Það eru ótal margar skrúfur sem er búið að stilla með ákveðnum hætti í alls konar skilyrðum fram og til baka í stuðningslánum og öðru sem hægt er að hafa skoðun á, (Forseti hringir.) líka varðandi auknar heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í nýsköpunarsjóðum. Þar má eflaust spyrja hvort allt sé nákvæmlega rétt stillt.