150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

726. mál
[19:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræðum frekari efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirunnar. Ég fagna sérstaklega þeirri aðgerð sem varðar fjármuni til að efla aðgengi fatlaðra sérstaklega að opinberum byggingum og byggingum sveitarfélaga og vinnustöðum. Það er löngu tímabært. Ég vona heitt og innilega að settir verði það miklir fjármunir í þetta að hægt verði í eitt skipti fyrir öll að ryðja þessum hindrunum úr vegi. Það er okkur til háborinnar skammar að það sé ekki hægt að komast inn í opinberar byggingar eins og t.d. bara umboðsmanns Alþingis.

Síðan er það sem á að leggja í nýsköpunarfyrirtæki, það eru lífeyrissjóðirnir, og þar erum við að tala um allt að 1% heildareigna, gífurlegar fjárhæðir, 50 milljarða. Þetta eru áhættufjárfestingar og þetta er auðvitað lífeyrir framtíðarinnar í þessum sjóðum og þar af leiðandi er verið að taka ákveðna áhættu, við vitum að sumt virkar og sumt ekki í þessu eins og öllu. Ég spyr þá á móti: Ætlar ríkið að leggja svipaðar upphæðir í nýsköpun og það er að hvetja lífeyrissjóðina til að gera? Ekki veitir af. Ég geri mér alveg grein fyrir að það veitir ekkert af því að spýta í nýsköpun og annað vegna þess að við vitum að ferðamannaiðnaðurinn, sem við treystum orðið allt of mikið á, er algerlega hruninn þannig að við þurfum eitthvað nýtt. Hvað ætlar ríkissjóður að gera, mun hann sjá til þess að hindrunum fyrir fatlaða verði útrýmt og mun ríkið leggja jafn mikla fjármuni í nýsköpun og lífeyrissjóðirnir?