frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er gott til að vita en ég hefði viljað sjá líka innspýtingu í málaflokkinn til að útrýma hindrunum fyrir fatlaða. En það að biðja er fyrsta skrefið. Síðan eru það fjárfestingarsjóðir eins og Kría, en ég fékk ekki svar við því hvað ríkið er að leggja mikla fjármuni í nýsköpun. Það skiptir máli því að ef ríkið sýnir fram á að það sé tilbúið að leggja töluverða peninga í nýsköpun eru aðrir auðvitað líka tilbúnir til að gera, það fylgist örugglega að stórum hluta að. Við vitum að núna er tækifæri t.d. í kvikmyndaiðnaði. Nú verður gífurleg þörf fyrir kvikmyndir vegna þess að það er orðin hálfgerð þurrð, það hefur allt stoppað. Við höfum sýnt að við eigum mjög frambærilegt fólk í þeim geira og þurfum að styðja (Forseti hringir.) virkilega vel við kvikmyndagerð. Ég spyr: Hversu háar upphæðir ætlar ríkið að leggja í þetta?