150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:12]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ríkan skilning á þeirri stöðu sem ferðaþjónustufyrirtæki eru í og að þetta sé mikilvæg aðgerð til að létta á þeim fyrirtækjum. En það er gríðarlega stórt skref sem hér er verið að stíga, að taka í raun réttinn af neytendum. Neytendur geta ekki valið hvort þeir þiggja endurgreiðslu eða inneign. Ég geri mér grein fyrir því að tryggingar þær sem fyrirtækin eiga að hafa lagt fram eiga að duga fyrir endurgreiðslum, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, þar á meðal inneigna, en það felst einnig áhætta fyrir neytendur í því að mögulega gera þær það ekki. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Liggur fyrir að það sé öruggt að þessar tryggingar dugi til að greiða inneignir neytenda ef til gjaldþrots kemur? Telur hæstv. ráðherra að neytendur séu að taka áhættu? Eru neytendur að taka áhættu með því að taka við inneign í stað þess að fá endurgreitt? Telur hæstv. ráðherra að breytingin brjóti gegn eignarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar eins og Neytendasamtökin telja og hafa komið fram með í dag?