150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:13]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst til að svara síðustu spurningu hv. þingmanns: Nei, ég tel þetta ekki brot á eignarréttarákvæði stjórnarskrár. Í fyrsta lagi vegna þess að þarna eru tryggingar að baki. Í öðru lagi er ekki verið að skerða neina kröfu.

Spurt er hvort það sé öruggt að tryggingar muni duga fyrir alla viðskiptavini ferðaskrifstofa. Ég get ekki sagt með fullri vissu að svo sé en við erum þó að leggja til þessa breytingu byggða á bestu fáanlegu upplýsingum sem hægt var að afla. Þær eru m.a. að allar stærstu ferðaskrifstofur sem eru með um 70% umfangs í pakkaferðum á Íslandi, hvort sem það eru erlendir ferðamenn hér á landi eða Íslendingar erlendis, eru með tryggingar þar sem fjárhæðin er hærri en útistandandi kröfur í dag.

Hér er verið að leggja til breytingu á lögum, í lögunum í dag er skýlaus endurgreiðsluréttur innan 14 daga og það er alveg ljóst að forsendur þeirrar tilskipunar eru að einhverju leyti brostnar. Enginn gat gert ráð fyrir að allar ferðir myndi falla niður (Forseti hringir.) í svona langan tíma. En ég get ekki fallist á það að um sé að ræða brot á stjórnarskrá og það eru tryggingar þarna að baki þannig að neytendur eiga að fá endurgreitt.