150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:15]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en ég hef þó enn áhyggjur af því að hér sé verið að setja neytendur í óeðlilega stöðu. Er örugglega tryggt að inneignin fáist endurgreidd ef það fyrirtæki sem inneignin er hjá verður gjaldþrota? Hvað gerist með fyrirtæki sem verða gjaldþrota og hafa ekki greitt þessa tryggingu eins og dæmi eru um fyrr í vetur? Hefði ekki verið heppilegra, herra forseti, og aukið líkurnar á að þessi aðgerð heppnaðist og jafnvel gert neytendur jákvæðari gagnvart því að leggja sitt af mörkum, ef inneignirnar væru einfaldlega tryggðar af ríkinu, líkt og var gert í Danmörku, og neytendur hafi jafnvel val um?

Að lokum, herra forseti, langar mig til að skjóta inn í ljósi umræðunnar í dag hvort hæstv. ráðherra muni á næstunni leggja til frekari aðgerðir til stuðnings ferðaþjónustunni. Það var heldur dapurlegt að hlusta á kynninguna á pakkanum í gær en þá var ferðaþjónustan varla nefnd á nafn. Hefur hæstv. ráðherra ekki stuðning í ríkisstjórninni til að koma fram með aðgerðir sem raunverulega gagnast ferðaþjónustunni?