150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:16]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Þetta eru auðvitað þannig spurningar að það er með engu móti hægt að svara þeim á einni mínútu. Það er lögbundin skylda að vera með tryggingar. Við getum ekki farið sömu leið og Danmörk vegna þess að í Danmörku er einn sameiginlegur sjóður. Við höfum ekki byggt upp slíkan sjóð hér heldur er hverju og einu fyrirtæki skylt að vera með tryggingar.

Það mál sem hv. þingmaður vísar í hefur verið kært til lögreglu þannig að það væri þá refsimál ef fyrirtæki gengur fram með þeim hætti. Ef breytingar verða á stöðu fyrirtækja sem hefðu áhrif á fjárhæð tryggingar er bundið í reglur í dag að fyrirtæki ber að tilkynna það til Ferðamálastofu og þá skal tryggingarfjárhæðin hækka sem því nemur.

Eins og ég nefndi í mínu fyrra svari hefði ég ekki lagt til þessa breytingu nema af því að þær upplýsingar sem við höfum sýna að allar stærstu ferðaskrifstofurnar, sem eru með stóran meiri hluta umfangs pakkaferða á Íslandi sem seldar eru, hvort sem það er til erlendra ferðamanna eða Íslendinga úti, eru með fjárhæð trygginganna hærri en útistandandi kröfur gagnvart neytendum.