pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Það mál sem hv. þingmaður nefnir í samhengi við þetta mál er ekki sambærilegt því sem hér er verið að leggja til. Það er alveg rétt að gildandi löggjöf er með skýran rétt gagnvart neytendum, þeir hafi rétt á að fá endurgreiðslu innan 14 daga. Það sem við erum að segja hér er að aðstæður eru með þeim hætti að við leggjum til að gerðar séu breytingar á gildandi lögum þannig að fyrirtækjum sé heimilt að gefa út inneignir í staðinn fyrir fulla endurgreiðslu. Það er ekki þannig ef viðskiptavinur fær inneign undir venjulegum kringumstæðum að inneignin fari inn í almennar kröfur ef fyrirtækið fer í þrot. Í tilfellum þessara fyrirtækja er lögbundin skylda að vera með sérstaka tryggingu og við höfum kveðið skýrt á um að inneignir falli undir þá tryggingu. Fyrirtækið getur með engu móti snert á þeim tryggingum þannig að þar eru neytendur varðir. Fari fyrirtæki í þrot fá neytendur greitt til baka úr þeim tryggingum sem hvert og eitt fyrirtæki heldur utan um. Rétt eins og réttur þeirra er ríkari samkvæmt lögunum þá eru líka kvaðir á fyrirtækin meiri en almennt gengur og gerist. Þessar tryggingar eru skylda og fyrirtækin komast ekki í þær tryggingar með neinu móti. Þetta er bundið inni á reikningum og Ferðamálastofa hefur yfirsýn yfir þá stöðu. Eins og ég nefndi áðan liggur fyrir að allar stærstu ferðaskrifstofurnar sem eru með langmestu umsvifin eru með tryggingarfjárhæð sem er hærri en útistandandi kröfur í dag.