pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég heyri vel hvað hv. þingmaður er að segja. Ég nefni það hér að þetta ákvæði er heimildarákvæði. Fyrirtæki gera mikið úr því og eiga mikið undir því að vera í góðum samskiptum við viðskiptavini sína og byggja upp viðskiptasambönd. Ef svona dæmi kæmi upp, þar sem fólk er í þessari stöðu, er fyrirtæki að sjálfsögðu heimilt og myndi vonandi taka tillit til slíkra aðstæðna þrátt fyrir að heimild sé til staðar til þess að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot með miklum afleiðingum fyrir störf o.s.frv. Ferðaskrifstofur eru mikilvægur hlekkur í þessari keðju og við erum einfaldlega að grípa til sértækra aðgerða til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot, en við gerum það byggt á þeim upplýsingum að réttur neytenda er tryggður þannig að þeir eigi ýmist að nýta inneign sína eða fá hana endurgreidda að 12 mánuðum liðnum.