pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað þannig að fyrirtæki hafa boðið inneignir í stað endurgreiðslu frá því að þetta ástand hófst. Það hefur gengið misvel. Mér skilst á forsvarsmönnum fyrirtækja að það gangi betur að bjóða erlendum ferðamönnum inneignarnótu eða fresta ferð og bóka nýja heldur en að gera það sama gagnvart Íslendingum sem eiga ferðir út. Þetta er ekki vísindaleg úttekt en þetta er svona það sem ég heyri. Auðvitað vonast ég sömuleiðis til þess að fyrirtæki leggi ofan á inneign einhverja viðbót, viðbótarfjárhæð, ofan á þá ferð sem keypt var. En þetta er að sjálfsögðu heimildarákvæði, það munu ekki öll fyrirtæki nýta sér það. Sum fyrirtæki hafa endurgreitt nú þegar, önnur ekki, og fyrirtækjunum hefur gengið misvel að koma út inneignum í stað endurgreiðslu.