150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:31]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Nú eru lögin, eins og ég kom inn á í fyrra andsvari mínu, byggð á frumvarpi sem þingið samþykkti fyrir rétt rúmlega ári, um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Það er skoðun Neytendasamtakanna að ekki sé ólíklegt að með því að breyta lögum afturvirkt geti ríkið skapað sér bótakröfu. Mig langar til að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því hvort sú staða geti skapast að ríkið sé að skapa sér bótakröfu með því að breyta lögunum afturvirkt og hvort það hefði kannski verið vænlegra, og hver skoðun hæstv. ráðherra er á því, að fara einhvers konar blandaða leið þar sem neytendur hefðu valkosti um annars vegar endurgreiðslu eða inneignarnótu, hvort það gæti verið heppilegri leið að bjóða neytendum upp á val. Það gæti kannski minnkað hættuna á því að skapa ríkinu bótakröfu.