150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:32]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst til að svara fyrri spurningu þá er alveg ljóst að tillaga 1. mgr. 1. gr. fer í bága við skýr ákvæði tilskipunarinnar. Það kann að vera að hún feli í sér brot á þjóðréttarlegum skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum. Það liggur fyrir, en auðvitað að uppfylltum ákveðnum skilyrðum varðandi skaðabótaskyldu þarf neytandi að sanna að hann hafi orðið fyrir tjóni o.s.frv. þannig að ég þori ekki að fullyrða um það, hvorki af né á.

Varðandi síðari spurninguna fórum við þá leið í lok mars að gefa það skýrt út að inneignarnótur féllu undir tryggingavernd þar sem við gengum eins langt og við gátum sem ráðuneyti að nánast hvetja fólk til þess að taka við inneignum til að reyna á það. Það er það sem önnur lönd hafa líka gert, að reyna að fá neytendur til þess. Það hefði verið heppilegt ef það hefði dugað, að neytendur hefðu í meira mæli tekið við inneignum, þannig að þetta hefði ekki haft þessi ofboðslega miklu áhrif á fyrirtækin. (Forseti hringir.) En með tímanum lá fyrir að það dugði ekki til. Þess vegna legg ég þetta til hér, til að koma einfaldlega í veg fyrir fjöldagjaldþrot (Forseti hringir.) í þessari tegund ferðaþjónustu vegna þess að neytendurnir eru tryggðir.