pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Þetta mál er allsnúið og mörg sjónarmið sem má reifa, t.d. hvort það standist yfir höfuð að breyta réttindum borgaranna með þessum hætti. Hér er óneitanlega verið að tala um að ákvæði 1. mgr. taki til pakkaferða sem ekki verða farnar á tímabilinu 15. mars til 30. júní. 15. mars er nú liðinn fyrir rúmum mánuði, þannig að þær ferðir verða a.m.k. ekki farnar. Þetta er því afturvirk breyting.
Ég ætla ekki að eyða mesta púðrinu í að ræða um hugsanlega bótaskyldu í þeim skilningi að breytingin standist ekki stjórnarskrá og þess háttar. En það sem ég vil gera að umtalsefni er að maður skilur mjög vel þann vanda sem við stöndum frammi fyrir og ferðaskrifstofur standa frammi fyrir því að geta ekki uppfyllt loforð sín. Það er eiginlega ómöguleiki í því sem blasir við okkur öllum. En hvað varðar innlenda þáttinn, þ.e. þær ferðaskrifstofur sem hafa selt Íslendingum ferðir til útlanda sem ekki verða farnar, þá geta vaknað nokkrar spurningar. Í fyrsta lagi, ef við gerum ráð fyrir því að fólk myndi segja: Gott og vel, ég sætti mig við að fá inneignarnótu og ég fer að ári. En hvaða ferð er það sem verður farin á ári? Er það sama ferðin og var boðið upp á? Nú er t.d. sú staðreynd að gengi krónunnar hefur breyst um 15%. Það er 15% dýrara fyrir ferðaskrifstofu núna að fara með Íslendinga til útlanda en var þegar ferðin var seld og greidd. Hvaða tryggingu hefur neytandinn fyrir því að hann fái jafn verðmæta ferð og hann keypti? (Gripið fram í: Aðra leiðina.) Það er hugsanlegt.
Í öðru lagi er annað sem ég held að skipti gríðarlega miklu máli í þessu samhengi. Við Íslendingar erum mjög ferðaglaðir og stór hluti okkar fer til útlanda, a.m.k. einu sinni á ári, og margar fjölskyldur og fólk fer í ferðalög til útlanda á sumartímanum. Nú verða þær ferðir ekki farnar. Stjórnvöld hvetja okkur til að ferðast innan lands. Það er frábært. Ég er viss um að mjög margir hugsa með sér: Núna fer ég bara í almennilegt ferðalag innan lands í staðinn fyrir ferðina sem ég hefði farið í til útlanda og nota peningana sem ég fæ endurgreidda til að fara og vera á hóteli og splæsa á mig sem ég er ekki vanur að gera þegar ég ferðast innan lands. Flest fólk, auðvitað eru undantekningar á því, fer nefnilega ekki í tvö sumarfrí á sama sumri, það er ekki með inneignarnótu til útlanda og ferðast svo innan lands á sama tíma. Það verður að velja annað hvort. Ef það situr uppi með það að hafa ekki getað farið til útlanda og á bara inneignarnótu þá ákveður það að vera heima á Íslandi en ferðast ekki innan lands af því að það hefur ekki efni á því. Mér finnst að þetta muni stangast á við markmiðin sem við erum að reyna að setja okkur, að hvetja okkur til að ferðast innan lands.
Í þriðja lagi má nefna það að loksins þegar ferðaþjónustan fer í gang og fer að jafna sig og menn þora að fara að ferðast og allt það, er það þá það besta sem við gerum fyrir þessi fyrirtæki að fara í ferðalag í stríðum straumum fyrir inneignarnótur? Þá koma engir peningar í kassann hjá þeim fyrirtækjum. Mér finnst mikill galli vera á þessari aðferð. Ég tek viljann fyrir verkið og ég skil það allt saman, en mér finnst að þarna rekist hvað á annars horn og eitt markmið sé skotið niður með öðru og þetta muni þegar upp er staðið ekki skila þeim árangri sem að er stefnt. Ég hefði haldið að það væri skynsamlegra að reyna að fara einhverjar aðrar leiðir. Bent er á það í greinargerðinni með frumvarpinu að sums staðar eru farnar aðrar leiðir. Menn geta auðvitað ákveðið að setja upp sjóð sem kaupir þessar kröfur þannig að ferðaskrifstofur hafi þá langt árabil til að vinna sig í gegnum þennan stafla ef þær lifa af og ef þær lifa ekki af þá séu ábyrgðirnar á þessu. En ég held að þessi aðferð sé, því miður, því að ég veit að reynt er að gera þetta af góðum hug, ekki líkleg til að skila þeim árangri sem að er stefnt. Bæði eru hugsanlega talsverðir ágallar á lögmæti aðferðarinnar sem geta kallað á alls konar deilur og málaferli og síðan held ég einmitt að þetta muni ekki skila þeim árangri sem að var stefnt.
Ég legg til að nefndin sem fær málið til meðferðar skoði þetta mjög vandlega og hvet hæstv. ráðherra sömuleiðis til að skoða þetta vel því að mér sýnist að það þurfi eiginlega að hugsa þetta allt upp á nýtt.