150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:43]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Það er þannig með þetta mál að mjög auðvelt er að taka undir með ýmsum sem hafa rætt um það. Það virðist vera svo vanhugsað og maður byrjar kannski fyrst á því að velta fyrir sér hvers vegna þessi ríkisstjórn finnur alltaf einhverjar leiðir til þess að taka hagsmuni fyrirtækja fram fyrir hagsmuni neytenda. En svo er líka svo rangur taktur í þessu. Maður spyr: Fyrir hvern er þetta? Hvaða hagsmuni er verið að reyna að verja? Af hverju er ekki hægt að verja þessa hagsmuni með hefðbundnari hætti, t.d. með því að ríkið komi að því eins og hefur verið annars staðar í þeim aðgerðum sem eru gerðar, frekar en að neytendur virki sem lánastofnanir, eins og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson nefndi rétt áðan? Þetta bitnar auðvitað á neytendum og það er rétt að segja: Þetta er ekki þannig að neytendur muni almennt koma út á sléttu vegna þess að við vitum að inneignarnótur fyrnast. Það er alsiða þegar flugfélög hafa bakað sér skyldu til að greiða jafnvel hátt í 600 evrur fyrir flug vegna seinkunar, þá bjóða þau of oft upp á jafnvel 1.200 evra inneignarnótu til að þurfa ekki að láta pening sem er kominn inn frá sér. Þau vita að það eru náttúrlega alltaf einhver laus sæti. Þau hugsa þetta þannig að það sé þó skárra að gefa 1.200 evra inneignarnótu. Þau vita líka að neytendur eru mjög oft kannski ófærir um að nýta sér inneignarnótur þegar á hólminn er komið. Ég hef sjálfur misst af svona tækifæri, þó fannst mér inneignarnótan frekar aðlaðandi í eitt skiptið.

Svo er auðvitað ýmislegt annað. Það hefur margt verið nefnt, búið er að nefna tryggingarnar og þá spyr maður: Væri ekki eðlilegra að breyta fyrirkomulaginu á tryggingunum þannig að hægt væri að innheimta þær með auðveldari hætti? Þetta eru lög sem við samþykktum fyrir ári og hér er kannski hægt að segja að það sé kominn ákveðinn galli í þeim lögum vegna þess að það gekk út á það ef fyrirtæki yrði gjaldþrota en svo eru kannski til tilfelli eins og þetta þegar við viljum einmitt koma í veg fyrir gjaldþrot. Búið er að nefna bótakröfurnar og búið er að nefna afturvirkni núna, ég ætla ekki að lengja það.

En tökum annan vinkil. Þetta snýst ekki bara um íslenska neytendur. Þetta snýst líka um útlendinga, erlenda aðila, oft í Evrópulöndum sem hafa keypt pakkaferðir hér á landi í gegnum íslenska aðila. Og þá er spurning hvort þetta muni standast Evrópurétt, hvort einhver vandamál muni verða gagnvart því. En þetta er kannski líka svolítið asnalegt, það er ekki góð landkynning að við séum einhvern veginn að skerða réttindi neytenda í öðrum löndum afturvirkt á þennan hátt. Mér yrði alla vega ekki rosalega skemmt ef ég væri í slíkri stöðu á leiðinni til einhvers lands.

Mér finnst að koma þurfi inn á hinn vinkilinn ef maður horfir fram hjá göllunum á þessu máli, og þeir eru margir, og horfir þess í stað á ásetninginn. Þetta er spurning um það hvernig við reynum að koma til móts við stöðu ferðaþjónustunnar, sem er arfaslöpp eins og er, hún er hrikaleg. Hvernig björgum við ferðaþjónustunni? Við höfum horft á stöðuna undanfarna mánuði og það eru margir, ekki síst í ferðaþjónustunni sjálfri, sem hafa beðið eftir því að ríkisstjórnin geri eitthvað sem mögulega gæti bjargað stöðu þeirra. Ég held að ég fari rétt með að þetta sé það eina sem hefur komið hingað til. Það er frekar undarleg staða verð ég að segja. Það eru kannski ekki endilega sérstaklega frábær meðmæli með aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Jú, auðvitað eru almennar aðgerðir sem ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt sér. En þegar við erum að tala um þetta tiltekna verkefni til að bjarga ferðaþjónustunni er þetta, held ég, það eina. Ég vona að einhver leiðrétti mig ef ég hef misst af einhverju stórkostlegu.

Það er kannski ágætt að við reynum að hugsa þetta lausnamiðað. Hvað væri hægt að gera í staðinn fyrir að fara þessa leið? Gætum við t.d. reynt að hvetja til einhverra aðstæðna þar sem mögulegt yrði fyrir þessi fyrirtæki að verða sér úti um og skapa sér ný viðskipti? Það er kannski erfitt þegar allt er lokað. Ég nefndi fyrr í dag í óundirbúnum fyrirspurnum til hæstv. utanríkisráðherra að það eru ákveðnar leiðir í boði. Við vitum t.d. að mörg lönd standa sig alveg þokkalega vel í sóttvörnum. Við vitum líka að það eru mörg lönd sem hafa verið kölluð græn svæði þar sem smit eru bara svo til engin eða jafnvel engin eftir, ég nefni Grænland og Færeyjar í því samhengi. Ekki það að þar séu mjög stórir ferðamannamarkaðir, en samt, það eru fleiri lönd í þessum pakka. Þá er spurning: Væri hægt að búa til einhvers konar hvatningu, búa til einhvers konar tvíhliða samninga við þau lönd, reyna að skapa forsendur fyrir því að fólk ferðist milli þessara landa sem eru með góðar sóttvarnir og eru í góðu ástandi? Það mætti jafnvel ganga lengra, eins og ég nefndi fyrr í dag, og hreinlega nýta okkur það að við höfum sýnt fram á að við getum „testað“ hátt í 2.000 manns á dag á Íslandi og eflaust væri hægt að auka þá getu. En núna, vegna þess að okkur gengur vel að ráða niðurlögum veirunnar, þurfum við kannski ekki að testa um 2.000 manns á dag innan lands. Þá væri mögulega hægt að nýta þá getu sem við höfum með sniðugum samningum, en væntanlega þyrfti að ræða það við ýmsa. En það er bara úrlausnarefni að prófa hreinlega alla sem koma til landsins við lendingu og fá niðurstöðuna samdægurs eins og flestir Íslendingar.

Ég veit til þess að margir sem búa í löndum þar sem ómögulegt er að fá próf myndu kannski loksins fara í draumaferðina til Íslands ef þeir vissu að Covid-próf væri innifalið í ferðinni. Kannski þyrfti að borga eitthvað fyrir það, einhvers konar komugjald, gott og vel. En hugsum þetta í svona lausnum. Reynum að finna leiðir til þess að gera þeim fyrirtækjum sem eru í þessum bransa kleift að afla sér nýrra tekna frekar en að reyna að koma tekjutapinu þeirra einhvern veginn yfir á neytendur. Mér finnst það vera miklu heilbrigðari nálgun. Satt að segja skil ég ekki af hverju við höfum ekki séð hugmyndir af þessu tagi frá ríkisstjórninni vegna þess að tíminn hefur verið nægilegur og mikil er þörfin.