150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

727. mál
[20:55]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu enda reikna ég með að þessi tillaga verði tekin til rækilegrar endurskoðunar í meðförum nefndarinnar. Mér heyrist það á öllum sem hér hafa talað, jafnt stjórnarandstæðingum sem stjórnarliðum. En ég hef fullan skilning á vanda og stöðu ferðaskrifstofa og það þarf að sjálfsögðu með einhverju móti að reyna að mæta þeim eins og svo mörgum við þessar erfiðu aðstæður. Ríkisstjórnin hefði kannski mátt hafa í huga við framlagningu og samningu aðgerðapakka tvö að taka sjálf ábyrgð á þeirri stöðu sem er uppi en velta henni ekki yfir á almenning. Það eina sem á ekki að vera í boði með þessari aðgerð er að láta almenning borga brúsann.

Ég get tekið undir með hv. þm. Jóni Steindóri Valdimarssyni þegar hann talar um að þetta frumvarp sé allt fullt af þverstæðum. Hvers virði er 100.000 kall eftir eitt ár í íslensku hagkerfi? Það er í fyrsta lagi góð spurning. Síðustu ár segja manni að hann verði að líkindum orðinn heldur verðminni þá. Ég held að við þurfum líka að hafa það í huga að í þessu getur falist ákveðin orðsporshætta ef það spyrst út með hvaða hætti við stöndum að neytendavernd á Íslandi. Það er bara liðin sú tíð að maður fékk einu sinni ári bækling frá Útsýn og Sunnu inn um lúguna og fór í svona ferðir og vissi aldrei af neinum öðrum ferðalöngum nema kannski rétt bara við sundlaugarbarinn. Í dag eiga ferðamenn um allan heim samskipti á samfélagsmiðlum, á bókunarsíðum og öðru og það er einfaldlega ekki gott ef við verðum uppvís að því að vera að breyta reglum eftir á, jafnvel við svona erfiðar aðstæður.

Ég get líka tekið undir með hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni þegar hann varpar upp mynd af almenningi sem önglar saman krónum um hver mánaðamót til að komast í draumaferðina. Það held ég að sé ekkert einstakt dæmi, ég held að það sé almennt þannig. Fólk þarf að hafa fyrir því að fara í dýrar utanlandsferðir, fara í langþráða ferð sem er búið að plana fram í tímann. Nú sér það hana fara í uppnám og á að sitja uppi með ávísun sem er ekkert víst að henti að nota eftir ár. Það er ekki víst að fólk hafi efni á að nota hana eftir ár, svo ég tali nú ekki um að það er kannski farinn af heimilinu aur sem það gæti þurft á að halda vegna þess að velflestir Íslendingar, mjög margir alla vega, búa við mjög skert kjör og skertar aðstæður á meðan þessi faraldur stendur yfir a.m.k. Ég ætla rétt að vona að nefndin taki þær athugasemdir alvarlega sem hér hafa komið fram og ríkið sýni manndóm og mæti þessu sjálft og greiði fyrir þetta en velti því ekki yfir á fólk sem langaði í ferðalag en kemst ekki vegna þessara aðstæðna.