Matvælasjóður.
Herra forseti. Eins og ég hef oft komið inn á í þessum ræðustól eru gríðarleg tækifæri til að efla íslenska matvælaframleiðslu enn frekar og einmitt í áttina að vistvænni og fjölbreyttari framleiðslu. Til þess höfum við gríðarleg tækifæri hér á Íslandi með nýtingu til að mynda jarðvarma, þá ekki síst lágvarma sem við eigum mjög mikið af, og ekki síður að nýta þann umframvarma sem verður til í jarðvarmavirkjunum okkar. Þau eru vissulega gleðileg skrefin sem hafa verið tekin nýlega til að opna á vinnslu iðnaðarhamps og ég vona sannarlega að það verði framtíð í því. Ég held að það sé bara mjög spennandi tækifæri í því og höfum við rætt það áður.
Við í Samfylkingunni fögnum því að verið sé að setja aukið fjármagn til eflingar matvælaframleiðslu og að það eigi að leggja sérstaka áherslu á nýsköpun eins og við höfum talað fyrir. Sömuleiðis er jákvætt að efla og bæta í styrkjaumhverfi matvælaframleiðslu á Íslandi. En af hverju að stofna nýjan Matvælasjóð í stað þess að efla þá sem eru fyrir? Hæstv. forsætisráðherra nefndi það í ræðu fyrr í dag að þessi sjóður myndi halda öðruvísi á hlutunum en hefur verið gert á forsjá þeirra eldri sjóða sem hér er verið að leggja niður. Mig langar að biðja hæstv. ráðherra að skýra það enn betur. Hvernig verður þessi sjóður öðruvísi en fyrri sjóðir? Hvað er að græða á því að setja þessa sjóði saman í einn? Og í því samhengi spyr ég: Hvernig sér ráðherrann fyrir sér að rekstur þessa nýja sjóðs? Það er talað um að stjórnin megi ákveða hvernig því verður fyrir komið, en hefur ráðherra einhverjar fyrir fram hugmyndir um hvernig það verður?