150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[21:18]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég vona að hann svari spurningu minni um hvernig hann sér fyrir sér reksturinn á sjóðnum í seinna andsvari. En það er fleira sem vekur spurningar og efasemdir um hvort hér sé um raunverulega aukningu til framtíðar að ræða. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir matvælaframleiðslu á Íslandi að hafa sterkan nýsköpunarsjóð til að leita í til að geta skapað ný verðmæti og ný störf í greininni. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að það eru gríðarleg tækifæri í matvælaframleiðslu á Íslandi. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við séum hér að tala um raunverulega aukningu til framtíðar.

Það kemur fram í grein hæstv. ráðherra, sem birtist í Morgunblaðinu í morgun, að sett verði til sjóðsins 500 millj. kr. stofnframlag sem verði úthlutað á þessu ári og á næsta ári renni til hans þau framlög sem fóru í Framleiðnisjóð landbúnaðarins annars vegar og AVS-sjóðinn hins vegar. Ég spyr því hæstv. ráðherra hvort megi skilja það sem svo að það verði einu framlögin í sjóðinn á næsta ári, þ.e. ráðgerð framlög í Framleiðnisjóð landbúnaðarins og AVS-sjóðinn eða megum við eiga von á því að það verði 500 milljónir aukalega í sjóðinn á næsta ári? Það væri sannarlega vel gert.

Og af því að við höfum tíma, þar sem það er óvænt minni umræða um þetta mál en ég átti von á, þá langar mig að spyrja um skipan stjórnarinnar. Það vekur athygli mína að hún er skipuð fjórum aðilum og þar af eru tveir sem hæstv. ráðherra skipar sjálfur. Til hvers ætlar hæstv. ráðherra að líta við skipan þeirra stjórnarmanna?