Matvælasjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessi orð. Ég er sammála hv. þingmanni með það að í matvælaframleiðslu á Íslandi eru gríðarleg tækifæri. Við höfum sýnt það bara í því að við erum að flytja út 98–99% af sjávarafurðum okkar á erlenda markaði og stöndumst, þessi örþjóð, þá hörðu samkeppni sem þar er á markaði. Ég leyfi mér að fullyrða að AVS-sjóðurinn á einhverja hlutdeild í þeim breytingum og þróun sem þarna hefur átt sér stað, t.d. bætta nýtingu á hverjum fiski sem dreginn er að landi. En stærsta þáttinn í þessu eiga fyrirtækin sjálf sem hafa í rauninni lagt í mjög mikla þróunarvinnu á sviði tækni og þekkingar. Sömuleiðis eigum við gríðarleg tækifæri á sviði landbúnaðar, hvort heldur við lítum til innlendrar framleiðslu eða sóknar á erlenda markaði. Ég nefni t.d. sókn íslenskrar mjólkurafurðar á erlenda markaði núna, skyrið, þar sem er verið að vinna gríðarlega góða hluti. Við eigum erfiðara uppdráttar með útflutning á kjötafurðum en við höfum staðið í því að flytja út tiltekna þætti í grænmetisframleiðslunni og gætum örugglega gert meira af því, ég tala nú ekki um að auka framleiðsluna í útiræktuðu grænmeti eða ylrækt eða einhverju því um líku til frekari innanlandsneyslu á kostnað innflutnings þessara sömu vara. Þannig að tækifærin eru fyrir hendi. Þetta frumvarp er liður í því að styðja og búa til viðspyrnu gegn því áfalli sem orðið hefur í íslensku efnahagslífi og ég fagna öllum stuðningi við þau áform.