Matvælasjóður.
Herra forseti. Ég fagna því að veita eigi aukið fjármagn, eins og virðist vera gert ráð fyrir, í þennan nýja sjóð, að veita eigi 500 millj. kr. til nýsköpunar, rannsókna og þróunar á sviði landbúnaðar- og sjávarútvegsmála og efla þannig þessar undirstöðuatvinnugreinar.
Ég hef hins vegar nokkrar athugasemdir og velti fyrir mér nokkrum atriðum í tilefni af framlagningu þessa frumvarps. Í fyrsta lagi vil ég nefna að stofnun þessa sjóðs, Matvælasjóðs, er ekki ný af nálinni. Gert var ráð fyrir að stofna slíkan sjóð hér fyrr í vetur en í atvinnuveganefnd í desember sl. var ákvæðið um stofnun Matvælasjóðs fellt út úr frumvarpi sem þá var til meðferðar. Og af hvaða ástæðum var það? Ég velti því fyrir mér af hverju tíminn er núna? Hvaða þörf er til stofnunar þessa sjóðs núna í apríl ef það var ekki talið tímabært af einhverjum orsökum í desember sl.?
Eins og allir vita berjumst við sem þjóð, og heimurinn allur reyndar, hatrammri baráttu við faraldur. Og þá kemur þetta frumvarp fram, frumvarp að efni til sambærilegt og það sem var fellt út hér fyrir fjórum mánuðum.
Ég velti fyrir mér: Er þessi veirufaraldur ástæða þess að koma hér ítrekað með fyrirætlanir í frumvarpi um að stofna svokallaðan Matvælasjóð sem var síðan fellt út hér fyrir fjórum mánuðum? Það eru mín fyrsta athugasemd, hvort tækifærið sé nýtt núna í þessum faraldri til að koma þessu frumvarpi í gegn. Ég er auðvitað sammála hæstv. ráðherra um að leggja aukið fjármagn til rannsókna og þróunar í báðum þessum greinum, svo það sé fært til bókar. Ég fagna því að leggja eigi fram 500 millj. kr. í auknar rannsóknir á því sviði. Ég hef líka áhyggjur af því að með þessu frumvarpi á að leggja niður núverandi sjóði, þ.e. Framleiðnisjóð landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóð í sjávarútvegi. Þessir sjóðir munu heyra sögunni til ef frumvarpið verður að lögum. Annar þeirra sinnti sjávarútvegi en hinn sinnti landbúnaði. Ég hef auðvitað áhyggjur af því sökum eðli þessara tveggja greina, undirstöðuatvinnugreina, landbúnaðar og sjávarútvegs. Ég hef áhyggjur af því þar sem himinn og haf, herra forseti, er á milli aðstöðunnar í þessum tveimur greinum. Í annarri greininni hefur gengið verulega vel og hefur hún þróast mjög hratt og verið mjög öflug í þróun og nýsköpun svo eftir er tekið víða um heim, og þar á ég við sjávarútveginn, á meðan landbúnaðurinn berst hins vegar í bökkum. Það er mjög mikilvægt og ég fagna því auðvitað að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að skipting milli þessara atvinnugreina verði svipuð og er í núverandi fyrirkomulagi. En það er mjög mikilvægt að í landbúnaði verði haldið vel utan um alla vinnu, rannsóknir, þróun og nýsköpun. Það má alls ekki slaka þar neitt á. Greinin á verulega undir högg að sækja en tækifærin eru fyrir hendi. Það þarf að vinna að því. Það þarf að gera af heilum hug.
Varðandi að fella niður þessa tvo sjóði, svo ég klári það nú aðeins, þá er ég hérna með nefndarálitið frá því í desember frá atvinnuveganefnd þar sem eftirfarandi kemur fram:
„Nefndinni var bent á að Framleiðnisjóður gegndi mikilvægu hlutverki fyrir dreifbýli og landbúnaðinn í heild en mörg þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkti féllu utan verksviðs Matvælasjóðs samkvæmt skilgreiningu í [þáverandi] frumvarpi. Var bent á að um 50% úthlutunar rynnu til frumkvöðlaverkefna á vegum bænda …“
Ég hef áhyggjur af þessu, ef þetta á að breytast eitthvað. Ég hef áhyggjur af því að undir hatti nýs sjóðs, Matvælasjóðs, gæti þetta breyst, eins og þeir höfðu áhyggjur af í desember, fyrir fjórum mánuðum. Svo er önnur spurning, en fyrir nefndinni í desember var bent á eftirfarandi:
„Var nefndinni bent á að sjóðinum væri falið ákveðið hlutverk samkvæmt rammasamningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins og m.a. hefði hann hlutverk í endurskoðun samningsins. Sú vinna ætti samkvæmt ákvæðum samningsins að fara fram árið 2019 en væri ekki enn hafin.“
Hefur eitthvað breyst síðan? Er þessari vinnu lokið síðan í desember eða hvernig á að fara með þá vinnu, sem var ein af ástæðum þess að frumvarpið í desember varð ekki að lögum? Ég hef áhyggjur af því líka hvort þarna sé verið að hlaupa á sig og vaða inn í þetta verkefni sem er að mörgu leyti ágætt, sérstaklega með aukið fjármagn, að mörgu leyti mjög ágætt þess vegna. Það er auðvitað sérkennilegt og einkennilegt að það ástand sem er núna í samfélaginu sé nýtt til þess að koma með og endurtaka hér einhvern leik sem menn voru gerðir afturreka með fyrir fjórum mánuðum, hvort nýta eigi tækifærið, hvort það sé ástæðan eða hvort ekki sé hægt að setja þetta framlag, þessar 500 milljónir, inn í núverandi sjóði.
Margar spurningar vakna við skoðun á þessu frumvarpi, hvort menn séu hér að hlaupa á sig. Ég hef líka áhyggjur af því, herra forseti, eins og hv. þingmaður spurði um áðan, um grænmetið og garðyrkjuna, hvað yrði um hana, og að hún væri ekki þarna undir. Ég hef áhyggjur af því að ekki eigi að leggja sérstakt fjárframlag til að efla rannsóknir, þróun og nýsköpun í garðyrkju, a.m.k. ekki í þessum sjóði, og hvort það sé eitthvað sérstakt sem ég hef þá misst af sem gert er ráð fyrir að renni til garðyrkjunnar. Það má vera að þetta sé misskilningur hjá mér.
Að lokum vil ég minnast á einn hluta landbúnaðar, held ég, sem heitir skógrækt, hvort skógrækt sé ekki þarna undir. (Gripið fram í: Held að það sé í umhverfisráðuneytinu.) Það er í umhverfisráðuneytinu. Það þarf auðvitað að efla hana líka. Og hvort ríkisstjórnin hafi ekki — nú tala ég eins og ég sé kominn í andsvör — gert ráð fyrir að efla það verkefni á einhvern sérstakan hátt, en ég ætlast ekki til að ráðherra svari því hér. En ég velti því svona fyrir mér þegar þetta er lagt fram.
Ég vil ítreka aðstöðumun þessara tveggja greina. Það er himinn og haf á milli aðstöðu sjávarútvegsfyrirtækja, sem eru mörg hver mjög öflug og það er vel, og landbúnaðarins í heild sinni sem samanstendur af litlum einingum, veikburða einingum. Samfélagið þarf virkilega að styðja við nýsköpun ef hún á að verða þar. Það þarf virkilega að vakta það.