150. löggjafarþing — 92. fundur,  22. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[21:40]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni málefnalega ræðu og góða. Ég skil þá nálgun sem hann hefur eðlilega á málið með þessi varúðarsjónarmið, ef við getum kallað það svo. Þau hafa áður komið fram og komu fram við umræðu þess í fyrra og eru skiljanleg vegna þess að eins og hv. þingmaður nefnir hér og dregur ágætlega fram er stærðarmunurinn svo mikill sem og getan, fjárhagslegt bolmagn o.s.frv. Ég legg áherslu á það í allri umræðu um málið að alveg frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að gæta verður að þessari stöðu við vinnslu mála. Ég er sannfærður um að í þeirri stöðu sem við erum komin í núna varðandi samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, hvort heldur er á sviði sjávarútvegs eða landbúnaðar, er mjög mikilvægt að við nýtum bestu þekkingu, nýjustu upplýsingar, færnina og tæknigetuna, sama úr hvorum hlutanum það er, til að nýta á báðum sviðum. Til þess er þetta m.a. gert og horft, að þetta geti átt sér stað með þeim hætti.

Ég vil undirstrika að í umræðunni um þetta höfum við alla tíð lagt áherslu á að gæta að þeim hlutföllum sem þarna eru á milli. Ég hef rætt við forystufólk í báðum greinum í aðdraganda þessa máls og ótti beggja hluta er sá að hinn hlutinn gleypi framlagið sem er að koma inn. Hugsunin að baki þessu er ekki sú, heldur að förum að líta á okkur sem eina heild, matvælaframleiðslulandið Ísland, sama á hvaða sviði það er. Þegar hér er rætt um þetta á þann veg að spurt sé hvort við séum að nýta tækifærið í því ástandi sem hefur skapast við kórónuveiruna er það ekki svo. Við erum einfaldlega að vinna þetta í fullu samræmi við það sem áður var gert. Í rauninni hefur ekkert breyst frá því að þingið samþykkti það með 54 samhljóða atkvæðum 19. júní á síðasta ári, algjörlega samhljóða, að stofna Matvælasjóð með sameiningu þessara tveggja sjóða. Ástæðan fyrir því að það gekk ekki til enda var, eins og ég gat um í framsöguræðu minni, pressa á það að við yrðum að klára lögin um matvæli til að ljúka ákveðinni EES-skuldbindingu fyrir áramót, þ.e. 14. desember. Okkur vannst einfaldlega ekki tími til að vinna til enda þennan hluta málsins sem var umdeildastur. Síðan hef ég unnið með málið vegna þess að í fyrirmælunum við afgreiðslu meiri hluta nefndarinnar, sem raunar allir nefndarmenn skrifuðu upp á, var lögð áhersla á að áfram yrði unnið að undirbúningi stofnunar Matvælasjóðsins í samræmi við það sem kvað á um í framangreindri þingsályktun sem 54 þingmenn samþykktu samhljóða. Það var það að efla nýsköpun og stefna að því í íslenskri matvælaframleiðslu, m.a. með því að stofna til Matvælasjóðsins. Það hef ég gert og þess vegna er þetta frumvarp komið fram með þeim hætti núna að hér er verið að leggja inn að mínu mati verulega háa fjárveitingu með stofnun sjóðsins í ljósi þess ástands sem vissulega ríkir, að við þurfum að mæta þeim áskorunum sem hafa risið við þennan faraldur með fyllri, betri og öflugri hætti en við getum í þessum tveimur tiltölulega litlu sjóðum. Vilji ríkisstjórnarinnar stendur til þess.

Ég fagna því að við séum öll sammála um að standa saman og styðja nýsköpun á þessu sviði. Ég held að við þurfum þess. Hvort sem okkur líkar betur eða verr að heyra það erum við á Íslandi svo lítil á alþjóðlegum mörkuðum, hvort heldur varðar innkaup á matvælum til okkar eða sölu og útflutning, að við þurfum að nýta alla þá krafta sem við getum í sameiningu til að halda stöðu okkar á hvoru sviðinu sem er.

Til að svara hv. þingmanni varðandi garðyrkjuna erum við núna í samningum við hana þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að mæta þeim áherslum sem hv. þingmaður nefndi hér varðandi flutnings- og dreifikostnað á rafmagni. Við erum að leggja aukna fjármuni inn í þann samning og ég vonast eftir því að við getum lokið þeim samningum fljótlega, í næstu eða þarnæstu viku. Ég leyfi mér að fullyrða á grunni þess samkomulags sem við kunnum að ná og munum ná að við munum sjá aukna framleiðslu á þessu sviði á þessu ári.

Af því að ég veit að hv. þingmenn sem hér eru í salnum vilja gjarnan að ég nýti allan þann ræðutíma sem ég hef var ég að hugsa um að bæta því við að ég þakka einfaldlega alla þá samstöðu sem er um þetta góða mál.