150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

útfærsla brúarlána og fleiri aðgerða.

[13:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem kom víða við í fyrirspurn sinni. Ég vil byrja á að segja að þetta þurfti ekki endilega að vera mjög óvænt þó að hv. þingmaður hafi orðið hissa. Það lá fyrir þegar við kynntum upphaflegu hlutastarfaleiðina að framhald hennar yrði kynnt fyrir mánaðamótin apríl/maí, sem nálgast óðfluga. Hlutastarfaleiðin hefur reynst gríðarlega mikilvæg, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. 35.000 manns hafa nýtt sér þessa leið, þar af 14.000 úr ferðaþjónustu en líka úr ýmsum öðrum geirum, svo sem þjónustu, verslun og byggingariðnaði. Leiðin hefur nýst gríðarlega vel. Þegar farið var hins vegar yfir framkvæmd hennar varð niðurstaðan sú að ekki væri nægjanlegt að framlengja hlutastarfaleiðina í óbreyttri mynd. Hún verður vissulega framlengd í óbreyttri mynd næstu tvo mánuði en síðan munu skilyrðin breytast þannig að starfshlutfall mun hækka úr 25% upp í 50%, sem mun hjálpa atvinnulífinu að trappa sig upp og verja störf. Hins vegar verður farin sú leið að styðja við fyrirtæki til að greiða laun í uppsagnarfresti. Það hangir saman við þriðju aðgerðina sem tengist því að flýta fjárhagslegri endurskipulagningu.

Hvenær koma þessar aðgerðir til framkvæmda? Það er rétt sem hv. þingmaður segir, og það kom skýrt fram hjá mér áðan, að frumvörp eru ekki tilbúin. Þau verða kynnt formönnum allra flokka á þingi áður en þau verða lögð fram. Stefnan hefur verið tekin á að þau muni koma inn í þingið í fyrri hluta maí en hins vegar lagt til að þau gildi frá 1. maí.

Hvað varðar brúarlánin hefur fjármálaráðuneytið lokið gerð samnings við Seðlabanka Íslands um þau og ég ætla að koma nánar að því (Forseti hringir.) í síðara svari.