150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

útfærsla brúarlána og fleiri aðgerða.

[13:39]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Það hefði verið betra ef hæstv. forsætisráðherra hefði notað tímann til að svara hinni eiginlegu spurningu um brúarlánin í stað þess að tala um hlutabótaleiðina sem ríkisstjórnin hefur nú kynnt að hún muni draga úr framlögum í. En hver eru áform stjórnvalda, ríkisstjórnarinnar, til framtíðar? Nú sjáum við að hæstv. forsætisráðherra lýsti því eftir annan aðgerðapakkann að það mætti hugsanlega búast við frekari aðgerðum fyrir lok maí. Vissulega eru lok maí ekki komin og þessi viðbrögð ríkisstjórnarinnar við gagnrýni — það er mjög gott og jákvætt að ríkisstjórnin taki gagnrýni til sín og bregðist við henni. En hvenær má vænta þess að sjá einhverja heildarsýn frá ríkisstjórninni í viðbrögðum við þetta, til að mynda varðandi Icelandair? Aðgerðir stjórnvalda fram að þessu virðast fyrst og fremst felast í því að styðja fyrirtæki til að segja upp fólki. Og hversu margir verða pakkarnir? Hæstv. iðnaðarráðherra segir að þeir verði a.m.k. tíu. Hæstv. samgönguráðherra segir að það sé bara einhver vitleysa sem blaðamenn hafi búið til. (Forseti hringir.) En þegar betur er að gáð þá er þetta haft eftir hæstv. iðnaðarráðherra. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi alla þessa pakka?