150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

frekari aðgerðir vegna Covid-19 faraldurs.

[13:45]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Eins og ég hef frá upphafi sagt hef ég hlustað eftir þeirri umræðu sem er í samfélaginu af hálfu allra stjórnmálaflokka á Alþingi, verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda af því að það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur. Það sem var hins vegar kynnt hér áðan lá algjörlega fyrir því að við sögðum skýrt, ekki á síðasta blaðamannafundi heldur þegar hlutastarfaleiðin var kynnt, að það væri algjörlega á hreinu að við myndum þurfa að kynna framhald hennar fyrr eða síðar. Af hverju er það gert, spyr hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, áður en frumvörpin eru tilbúin? Það þurftu að liggja fyrir skýr skilaboð um hverjar fyrirætlanir stjórnvalda væru fyrir þessi mánaðamót. Þau þurftu að liggja fyrir.

Nú er frumvarpssmíðin að sjálfsögðu hafin. Hv. þingmaður spyr um tímalínu í þessu. Alþingi mun þurfa að kljást við þetta núna í maímánuði. Hvað annað mun gerast? Ég veit ekki hvort hv. þingmenn fylgjast með sömu fjölmiðlum og ég, en ég held að þið gerið það mörg, og það er þannig að öll ríki standa frammi fyrir mikilli óvissu þegar kemur að efnahagsaðgerðum og ólíkum sviðsmyndum. Hér er ekki verið að styðja við ferðaþjónustuna með þeim aðgerðum sem við kynntum í dag af neinni greiðasemi. Það er verið að koma til móts við fyrirtæki, sem hafa orðið fyrir 75% tekjufalli vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi, til að þau geti staðið við sínar skuldbindingar og það er ekki af neinni greiðasemi. Spurningunni um hversu lengi þetta muni vara og hversu margir pakkarnir verði er einfaldlega ekki hægt að svara. Frekari mál munu koma í maímánuði. Hv. þingmaður vísar í yfirlýsingar um húsnæðismál og við eigum von á þeim í maímánuði og þau verða kynnt þegar það liggur fyrir og fleira. (Forseti hringir.) Þetta er einfaldlega þannig ástand að það kallar á að við séum á vaktinni, ekki bara næstu vikur heldur næstu mánuði og misseri.