150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

frekari aðgerðir vegna Covid-19 faraldurs.

[13:49]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því ef ég hef ekki virt tímamörk. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir. Það var tekin ákvörðun hér, sem hefur notið víðtæks stuðnings, að fylgja þeim sóttvarnaráðstöfunum sem heilbrigðisyfirvöld lögðu til. Þær ráðstafanir voru í takt við tillögur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Hefur það verið gagnrýnt að þessi leið hafi verið tekin? Já, því að hún hefur efnahagsleg áhrif. En við forgangsröðuðum sóttvarnaráðstöfunum, heilbrigðissjónarmiðum, mannslífum og sögðum: Við munum síðan takast á við hinar efnahagslegu afleiðingar.

Hv. þingmaður spyr um beina styrki. Um hvað snúast þessar aðgerðir annað en beina styrki? Hlutastarfaleiðin og styrkir til fyrirtækja til að greiða laun í uppsagnarfresti eru auðvitað styrkir til fyrirtækja, en vissulega fara þeir styrkir þannig fram að við gerum það út frá sjónarhóli launafólks af því að markmiðin eru þau að við erum að verja störf, verja réttindi launafólks og styðja við fyrirtækin í landinu. Þau markmið eru uppfyllt með þessum aðgerðum.