150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

aðgerðir til að tryggja flugsamgöngur.

[13:54]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég leyfi mér að fullyrða að aðgerðirnar sem kynntar voru fyrr í dag munu ekki tryggja starfsemi Icelandair til lengri tíma. Auðvitað munu þær skipta einhverju máli en þær munu ekki tryggja starfsemina. Hins vegar er mikilvægt að gera það. Þegar hæstv. ráðherrar eru að ræða um Icelandair finnst mér þeir fara eins og köttur í kringum heitan graut. Það má vera að þeir séu hræddir við að tala um viðkvæma stöðu félags á markaði, þeir eru kannski hræddir um að markaðirnir hrynji, en markaðirnir eru nú þegar á hliðinni. Það er einmitt áhyggjuefnið. Ríkisstjórnir annarra ríkja eru ekki smeykar við að ræða og koma að rekstri kerfislega mikilvægra fyrirtækja eins og flugfélaga. Mörg dæmi eru um það úti um allan heim. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi ekki líka áhyggjur af samfélagsörygginu sem er undir ef þetta kerfislega (Forseti hringir.) mikilvæga fyrirtæki fer á hausinn.

Ég held, hæstv. forseti, að við verðum að horfast í augu við það að ríkið þarf með einhverjum hætti að koma að og þá er mikilvægt að hagur almennings sé hafður í huga og að einhver von sé til að fá peningana til baka.