150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

afkoma öryrkja.

[13:57]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hver pakkinn af öðrum kemur frá ríkisstjórninni af Covid-málum. Einn pakki hefur komið fyrir aldraða og öryrkja, þáttaröðin endalausa, Hungurleikarnir. Hversu lengi eiga þeir að éta það sem úti frýs?

Á sama tíma og þetta er hefur ríkisstjórnin lofað 20.000 kr. eingreiðslu, ekki í síðasta mánuði, ekki um næstu mánaðamót heldur 1. júní. Þangað til skulu öryrkjar herða sultarólina.

Á sama tíma hefur aukning í skerðingum hjá öryrkjum farið úr 10 milljörðum 2015 í 16 milljarða 2019, 60%. 16 milljarðar eru skertir og Öryrkjabandalagið biður ráðherra um svör en fær engin. Við skulum átta okkur á því að það var frétt úr einu hverfi í Bretlandi þar sem var úthlutað 250 matarpökkum á viku. Í dag þurfa Bretar að úthluta 250 matarpökkum á dag.

Hvernig er staðan á Íslandi? Fjölskylduhjálp Íslands gaf út að hún ætlaði að gefa þeim mat sem búa í póstnúmeri 101–116, skipta hverfunum niður. Hvers vegna? Vegna þess að hún getur ekki úthlutað fleirum mataraðstoð, ástandið er orðið það slæmt.

Ég spyr hæstv. ráðherra: Ætlar hann að sjá til þess núna í eitt skipti fyrir öll, bara núna, að hækka öryrkja upp í 290.000 eins og atvinnulausir eru með, hækka síðan öryrkja og atvinnulausa í framhaldinu upp í lágmarkslaun, 335.000 kr., á næstu tveimur, þremur mánuðum? Væri hann til í að gera þetta, a.m.k. til að sýna lit um það að þessir einstaklingar eigi rétt á því að fá mannsæmandi laun eða a.m.k. skrimta (Forseti hringir.) á sínum lífeyrislaunum?