afkoma öryrkja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er alveg rétt að við höfum verið að koma með ýmsar aðgerðir. Varðandi lokaspurninguna sem fyrirspyrjandi var með um ákveðnar sértækar aðgerðir, um hækkanir, þá hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir um slíkt. Við erum enn með fjármagn á yfirstandandi fjárlögum sem á eftir að ákveða með hvaða hætti verður ráðstafað og var gert ráð fyrir að yrði ráðstafað samhliða breyttu kerfi almannatrygginga. Þó er nú orðið nokkuð ljóst að við erum ekki að fara að koma fram með það mál vegna þess að ekki er hægt að segja að það sé Covid-mál. Það á eftir að ræða með hvaða hætti því fjármagni verður ráðstafað.
Við höfum síðan verið að ráðast í margvíslegar aðgerðir. Þingmaður nefnir 20.000 kr. eingreiðslu sem mun renna til örorkulífeyrisþega. Fjárlaganefnd hefur núna til meðferðar fjáraukalagafrumvarp sem gerir ráð fyrir tæpum hálfum milljarði til að styðja við viðkvæma hópa sem heyra undir félagsmálaráðuneytið og örorkulífeyrisþegar eru sannarlega einn þeirra hópa. Við erum líka með 600 milljónir sem eru ætlaðar í stuðning við tómstundir barna á tekjulágum heimilum. Ætla má að einhver hluti örorkulífeyrisþega sé þar undir. Þetta eru umtalsvert háir fjármunir sem munu geta runnið inn á heimili þar sem börn örorkulífeyrisþega búa. Síðan hefur forsætisráðherra sagt það, sagði það hér áðan, og við höfum sagt að gert er ráð fyrir því núna í maí að koma með aðgerðir til að mynda í húsnæðismálum.
Varðandi stöðuna almennt út af Covid erum við enn með starfandi sérstakt teymi innan félagsmálaráðuneytisins, og þó að ekki séu að greinast mörg smit á dag þá eru enn sóttvarnaaðgerðir, sem hefur það verkefni að samþætta alla þjónustu fyrir viðkvæma hópa. Ég fer kannski aðeins betur yfir stöðuna gagnvart örorkulífeyrisþegum í seinna svari.