afkoma öryrkja.
Virðulegi forseti. Eins og ég var komin að í fyrra svari er félagsmálaráðuneytið með starfandi sérstakt viðbragðsteymi, m.a. í samstarfi við Rauða krossinn, 1717. Þangað geta allir leitað. Það geta allir hringt í 1717, það geta allir sent inn erindi, líka þeir sem ekki eiga fyrir fæði eða húsnæði eða hvernig sem það er. Við erum nýbúin að kynna aðgerðir til að tryggja að allir hafi húsnæði meðan á Covid stendur. Ég gleymdi að nefna það áðan. Þar er öllum erindum svarað. Það er farið í samskipti við sveitarfélag viðkomandi einstaklings og öllum er fundinn farvegur hvað þetta snertir. Ég held að þetta sé til mikillar fyrirmyndar. Þetta hefur gengið gríðarlega vel. Velferðarnefnd hefur verið upplýst um gang mála vikulega meðan mest var um smit, það hefur dregið aðeins úr því síðustu vikur, en ég hygg að það verði gert á fundi í velferðarnefnd í fyrramálið. Þangað geta allir leitað og mál allra sem leita þangað eru tekin fyrir í samstarfi við félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags vegna þess að það er félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags sem ber lagalega ábyrgð á því að uppfylla þessa þjónustu. Það er krefjandi við þær aðstæður sem hafa verið uppi, (Forseti hringir.) samkomubönn o.s.frv., en við höfum verið að vinna þétt saman, ríki og sveitarfélög og hagsmunaaðilar, að því að tryggja þessa þjónustu (Forseti hringir.) og við erum með frekari fjármuni til að styðja við þetta, núna er í umræðu m.a. hálfur milljarður eins og ég nefndi.