endurgreiðslur ferða.
Frumvarpi ráðherra ferðamála og neytenda um pakkaferðir er ætlað að leysa raunverulegt vandamál. Tillaga ráðherra brýtur hins vegar á rétti neytenda að óþörfu. Tillaga ráðherra brýtur stjórnarskrána að óþörfu. Tillaga ráðherra brýtur á eignarréttinum að óþörfu.
Í sinni einföldustu mynd er vandamálið það að fólk borgaði peninga til ferðaskrifstofa. Ferðunum var aflýst eða þær afboðaðar. Fólk getur komið með kröfu á endurgreiðslu sem er varin eignarréttinum. Ferðaskrifstofum er ekki skylt að lögum að skila fólki peningunum. Sumar ferðaskrifstofur sem geta ekki gert það fara þá á hausinn og þá koma tryggingafélög inn, því að þetta er tryggt, til að greiða fólki til baka.
Ráðherra leggur fram frumvarp um að allar ferðaskrifstofur, líka þær sem þurfa þess ekki, fái að halda öllum peningum fólks í heilt ár þó að það brjóti eignarréttinn, lög og stjórnarskrá og þó að fólk þurfi nauðsynlega þessa peninga núna vegna Covid. Samt eru mestar líkur á því að 50% ferðaþjónustufyrirtækja fari á hausinn. Allt skal þetta gert vaxtalaust, ferðaskrifstofur fá að halda öllum peningunum vaxtalaust í 12 mánuði. Það er brotið á eignarrétti neytenda.
Ég spyr ráðherra: Fundaði hún með samtökum aðila í ferðaþjónustu meðan lausna var leitað á vandanum? Það tók heilan mánuð. Ég hef heyrt að það hafi verið fundað með einhverjum ferðaþjónustufyrirtækjum en Neytendasamtökin fengu ekki fund í heilan mánuð. Hvers vegna var ekki haft samráð við Neytendasamtökin þegar heildarhagsmunir neytenda fara gjörsamlega forgörðum í frumvarpinu? Ráðuneytið hefur lögbundna tíu daga til að svara mér um öll samskipti ráðuneytisins um þetta mál. Mun ráðherra ekki tryggja að svo verði?
Er hægt að leysa þennan greiðsluvanda ferðaskrifstofa án þess að brjóta á eignarréttinum, stjórnarskránni og neytendalögum? Svarið er: Já. Hyggst ráðherra ekki annaðhvort draga til baka frumvarp sitt eða koma með raunhæfar lausnir? (Forseti hringir.) Við erum búin að vinna frumvarpið í nefndinni, við erum búin að tala við stjórnskipunarsérfræðinga sem eru búnir að segja að það sé hægt. Ætlar ráðherra að halda til streitu þessari lausn sinni sem brýtur stjórnarskrána og eignarréttinn eða mun hún sjá ljósið?