150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

endurgreiðslur ferða.

[14:07]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ansi stór orð voru notuð í spurningunum og ég get ekki fallist á það að ég sé meðvitað með frjálslegum hætti að brjóta eignarrétt fólks og stjórnarskrá. Ég vil leiðrétta hv. þingmann með það að þegar fyrirtæki fer í þrot stíga engin tryggingafélög inn heldur er fyrirtækjum (Gripið fram í.) samkvæmt lögum skylt að vera með tryggingar, þ.e. bundið fé á reikningi sem fyrirtækin komast ekki í, þaðan sem hægt er að endurgreiða neytendum útistandandi kröfur.

Var haft samráð við þessa aðila? Já, ég átti fund með fulltrúum þriggja ferðaskrifstofa í eitt skipti og ég átti sömuleiðis fund með framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Ég var með allnokkra starfsmenn í ráðuneytinu í vinnu við þetta mál, bæði lögfræðing ráðuneytisins og sérfræðinga á neytendasviði. Við vorum í samskiptum við ýmsa aðila. Við fylgdumst með þróun sem hefur átt sér stað erlendis. Við áttum samskipti við Neytendastofu og Neytendasamtökin. Við töluðum við fjölda aðila við vinnslu þessa máls. (Gripið fram í.) — Ég er með orðið, hv. þingmaður, þú kemst í andsvar þegar ég er búin að tala. (Gripið fram í: Jú, jú.) Takk. Að sjálfsögðu mun ég svara þeim spurningum sem að ráðuneytinu …

(Forseti (SJS): Forseti biður hv. fyrirspyrjanda að leyfa ráðherra að svara. Þetta er ekki samtal fyrirspyrjanda og ráðherrans, heldur er hæstv. ráðherra að svara og hann svarar öllum þingheimi og þjóðinni.)

Að sjálfsögðu mun ráðuneytið og ég svara þeim spurningum sem hv. nefnd beinir til ráðuneytisins. Að sjálfsögðu mun ég gera það. Það væri stórundarlegt ef ég ætlaði ekki að svara þeim spurningum. Það er bara mjög gott að öll sú vinna sem við höfum lagt í málið komist áleiðis og til skila. Ég vil líka benda skýrt á að frumvarpið er í þinglegri meðferð og hv. þingmaður situr í nefndinni sem fer með málið. (JÞÓ: Akkúrat.) Ég hef lagt málið fram á þingi (Forseti hringir.) og það er nú í þinglegri meðferð. Ég spyr því hv. þingmann og nefndina: Hvernig ætlar hún að fara með málið?