150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

endurgreiðslur ferða.

[14:09]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Stór orð? Já, það eru stór orð. Ég er að vinna þetta mál í nefndinni og óskaði eftir því að tveir stjórnskipunarsérfræðingar, sérfræðingar í stjórnskipunarrétti, kæmu fyrir nefndina. Báðir aðilar voru sammála um að þessar kröfur vörðuðu eignarrétt og að það væri verið að svipta fólk honum, menn væru komnir út á mjög hálan ís og að öllum líkindum brjótandi stjórnarskrá eins og ráðherra leggur frumvarpið fram. Það eru stór orð en það eru sönn orð.

Varðandi brot á lögum um neytendaréttindi er bara viðurkennt í frumvarpinu að það er það sem á að gera. Og það sem segir í frumvarpinu um eignarréttinn er bara, með leyfi forseta:

„Efni frumvarpsins gefur ekki tilefni til þess að samræmi þess við stjórnarskrá verði sérstaklega metið.“

Ha? Finnst ráðherra ekki tilefni til að meta sérstaklega hvort það að svipta fólk lögbundinni endurgreiðslukröfu brjóti á stjórnarskrárbundnum eignarrétti fólk? Hæstv. ráðherra er í Sjálfstæðisflokknum, þar sem eignarrétturinn er í grunngildum flokksins, á eftir frelsi og einhverju einu öðru gildi, nefndur strax nr. 3. (Forseti hringir.) Jú, að sjálfsögðu á að meta þetta og það er nokkuð sem ráðherra á að gera þegar hann leggur fram frumvarp. Við í nefndinni munum að sjálfsögðu vinna þetta og passa upp á að enginn eignarréttur sé brotinn. (Forseti hringir.) Það er ótrúlegt að ráðherra skuli leggja fram svona frumvarp. (Forseti hringir.) Ég mun kalla eftir því að ráðuneytið skili okkur þessum upplýsingum innan sjö daga.