150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

endurgreiðslur ferða.

[14:11]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það er enginn ágreiningur um það að öllum spurningum sem nefndin beinir til ráðuneytisins verður svarað og það innan tímafrests. Það er algjör óþarfi að ætla eitthvað annað eða hækka róminn verulega til að halda fram að það verði ekki gert. Að sjálfsögðu verður það gert.

Svo er ágætt að hv. þingmaður skuli minna mig á um hvað gildi Sjálfstæðisflokksins snúast.

Ég hef legið yfir þessu máli í nokkrar vikur og ég ætla ekki að standa hér og segja að frumvarpið sé gallalaust. Það er nú í þinglegri meðferð og ég og ráðuneytið erum til í að veita öll þau svör og alla þá aðstoð sem við getum til að lenda málinu með einhverjum hætti. Við stöndum einfaldlega frammi fyrir því að forsendur þessarar tilskipunar eru brostnar. Við horfum framan í fjölda gjaldþrota ef ekkert verður að gert. Þessi leið var lögð til og það er jákvætt að fá fram sjónarmið og galla á frumvarpinu (Forseti hringir.) og svigrúm til að svara þeim spurningum sem upp koma vegna þess að vissulega erum við að leggja til að lögum verði breytt þar sem réttur neytenda er algjörlega skýr um endurgreiðslu innan 14 daga. Ég átta mig alveg á því.