kjaramál lögreglunnar.
Virðulegur forseti. Í Covid-málum er að mörgu að huga og eftir því sem faraldurinn geisar áfram koma í ljós fleiri afleiðingar fyrir samfélag okkar sem voru kannski ekki augljósar í upphafi. Ein af þeim afleiðingum er að heimilisofbeldi hefur aukist talsvert í íslensku samfélagi, eitthvað sem ég vona að hv. allsherjar- og menntamálanefnd taki umræðu um í bráð, ég hef óskað eftir því í nefndinni. Það varðar auðvitað mjög mikilvæga stofnun á Íslandi, lögregluna. Nú kynnist maður því við að starfa hér á þingi og óska sífellt eftir auknu eftirliti með lögreglunni að lögreglustarfið er fjölbreytt, það getur verið erfitt og mjög krefjandi og það getur verið vanþakklátt starf eins og hæstv. ráðherra þekkir eflaust á eigin skinni. Þetta vanþakklæti sem núna skín, því miður, í gegnum umræðuna er hvernig yfirvöld launa ekki þetta starf á þann hátt sem sómi er að. Það eru síendurteknar kvartanir hjá lögreglumönnum um að ekki sé komið til móts við þarfir þeirra hvað varðar laun og kjör. Til að bæta gráu ofan á svart hafa lögreglumenn ekki verkfallsrétt, þeir geta ekki farið í verkfall. Það er svo sem óþarfi að rekja alla þá sögu hér en í stuttu máli má segja að sú staða gerir það að verkum að lögreglumenn eru settir í óþolandi stöðu. Þetta er lykilstétt í okkar samfélagi og sama hversu mikið eftirlit við höfum með henni þá þurfum við að passa það að lögreglumenn upplifi að þeir séu metnir að verðleikum. Það er leiðin til að skila borgurum þeirri þjónustu sem þeir eiga rétt á og ætlast til.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Ætlar hæstv. ráðherra að leggja sitt af mörkum til að bæta kjör lögreglumanna?