kjaramál lögreglunnar.
Virðulegi forseti. Þegar ég les Facebook-innlegg hæstv. ráðherra eða hlýði á hæstv. ráðherra í pontu er ýmislegt sem mér líkar vel að heyra og ég get tekið undir í sambandi við lögreglumenn, löggæslu og mikilvægi þess að kjör lögreglumanna séu góð. Það sem ég óttast hins vegar er að enn eina ferðina verði þessi stétt skilin eftir þannig að hún þurfi strax að verða rosalega ósátt eftir ár eða mjög skamman tíma vegna þess að það er nokkuð sem mér hefur fundist við einfaldlega hafa þurft að venjast, að grunnþjónusta í okkar samfélagi, löggæsla, heilbrigðisstarfsfólk og kennarar séu bara alltaf í kjarabaráttu, séu sífellt og linnulaust upp á kant við yfirvöld af því að þessum störfum er ekki sýndur sá sómi sem þessar starfsstéttir eiga skilið og við hljótum að vilja hafa.
Ég ætla að endurtaka spurninguna: Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér fyrir því, kannski sérstaklega í samskiptum við hæstv. fjármálaráðherra, að kjör lögreglumanna verði bætt þannig að þessi mál (Forseti hringir.) séu leyst til frambúðar, a.m.k. til lengri tíma, frekar en að fara enn og aftur í þennan slag? Þetta má ekki vera svona og er ekki eðlilegt að sé svona þegar kemur að grunnþjónustu.