150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

kjaramál lögreglunnar.

[14:18]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Já, mér er mjög annt um að samningar náist. Ég hef rætt málið við hæstv. fjármálaráðherra og beðið um upplýsingar af hverjum einasta fundi, fengið nýjustu upplýsingar um framvinduna og helstu ágreiningsmálin og óskað eftir upplýsingum um launaþróunina, dagvinnuna, heildarlaunin og aðra þætti sem koma inn í laun lögreglumanna. Ég mun fylgjast með því áfram og að sjálfsögðu bind ég miklar vonir við það að fundurinn á morgun muni skila árangri. Ég veit að við erum öll sammála um að vilja semja vel við lögreglumenn, við viljum gera vel. Við höfum verið að semja við aðila á grundvelli lífskjarasamningsins þó að auðvitað séu forsendur og staða efnahagsins með allt öðrum hætti í dag en þegar farið var í hann.

Ég fylgist vel með þessari baráttu. Lögreglumenn eru afar mikilvæg stétt sem sinnir nú sem áður afar vandasömum verkefnum og ég óska þeim alls hins besta.