breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, fyrir hönd Önnu Kolbrúnar Árnadóttur í fjarveru hennar, um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, um meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum. Frumvarpið mun reyndar heita, að tillögu meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar, ef það verður samþykkt, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila framlengingu fresta og rafræna meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum o.fl. En það skiptir kannski minna máli.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem miða að því að heimila stjórnvöldum að beita í auknum mæli rafrænum lausnum við meðferð mála og notkun síma og fjarfundabúnaðar í samskiptum við málsaðila. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að tilgangur þess sé að tryggja að réttarspjöll hljótist ekki af ef stjórnvöld og dómstólar geta ekki framkvæmt lögbundin verkefni vegna tímabundinna áhrifa Covid-19 faraldursins.
Minni hlutinn, sem ég tala hér fyrir, getur hreint út sagt ekki tekið undir að brýn nauðsyn sé á að gera allar þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu vegna þessa faraldurs. Minni hlutinn bendir á að með frumvarpinu séu m.a. lagðar til breytingar sem varða mikilvæga hagsmuni einstaklinga sem ekki sé þörf á, bæði þar sem fyrirséð er að breyttar reglur taka gildi um takmarkanir á samkomum frá 4. maí nk. og þar sem hagsmunir aðila séu ekki nægjanlega tryggðir í greinum frumvarpsins.
Minni hlutinn er hlynntur aukinni rafrænni stjórnsýslu sem getur sparað bæði tíma, fyrirhöfn og fjármagn, sérstaklega fyrir þá sem leita til stjórnsýslunnar. Minni hlutinn telur þó afskaplega brýnt við alla vinnu við innleiðingu rafrænna lausna að gætt sé til fulls að sjónarmiðum um persónuvernd í hvívetna og vandað til verka svo réttaröryggi við rannsóknir sakamála sé ætíð tryggt og hagsmuna gerðarþola fyrir sýslumanni sé gætt til fulls. Nú þegar er hafin vinna við að auka notkun rafrænna lausna hjá stjórnvöldum, m.a. með verkefninu Stafrænt Ísland, og leggur minni hlutinn áherslu á að þeirri þróun sé fylgt og tryggt verði að til grundvallar notkun slíkra lausna liggi nægilegt fjármagn, fullnægjandi tækni, næg upplýsingagjöf til stofnana og til staðar sé regluverk um beitingu rafrænna lausna.
Minni hlutinn telur að 1., 2., 3., 4. og 9. gr. frumvarpsins feli í sér breytingar sem séu til bóta fyrir aðila og unnt sé að koma þeim til framkvæmdar án mikillar fyrirhafnar og styður þær breytingar.
Minni hlutinn telur hins vegar að aðrar breytingar þarfnist nánari skoðunar og bendir á að sumar greinar frumvarpsins beri þess glöggt merki að skammur tími hafi gefist til vinnslu frumvarpsins og að samráð við þá sem starfa hjá þeim stjórnvöldum sem frumvarpið tekur til hafi verið í lágmarki. Minni hlutinn ítrekar mikilvægi þess að vandað sé til verka við innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu með sjónarmið um persónuvernd að leiðarljósi, ekki sé hlaupið til í tilefni af faraldrinum og þess ástands sem nú er uppi í samfélaginu og öllu safnað saman í einu frumvarpi, bæði góðum og slæmum lausnum og tillögum sem liggja einhvers staðar inni í ráðuneyti uppi í Skuggasundi, og því öllu hrúgað inn á þing og sagt að þetta sé allt vegna faraldursins og þetta sé allt hið besta mál. Þetta er allt rafrænt. Þetta er nútíminn, þetta er það sem koma skal. Það má ekki vera þannig. Við þingmenn verðum að hafa tíma til að geta greint þetta og deilt á það og gagnrýnt. Frumvarpið á ekki að vera undir því yfirskini að núna þurfi að gera þetta eins og berlega kemur í ljós í frumvarpinu. Þetta er skólabókardæmi um slík vinnubrögð. Það er öllu hrúgað hér inn og sagt að þetta sé allt hið besta mál. Innan um ágætisákvæði eru ýmis óvönduð eins og kemur í ljós.
Herra forseti. Í 5. og 6. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögum um meðferð sakamála og einnig lögum um meðferð einkamála, sem fela í sér heimild til bráðabirgða til að nota fjarfundabúnað, m.a. við skýrslutöku sakborninga og vitna. Þrátt fyrir að um sé að ræða heimildarákvæði leggst minni hlutinn gegn þessum breytingum þar sem um er að ræða veigamiklar breytingar á vinnubrögðum lögreglu og dómstóla við skýrslutökur á vitnum og sakborningum. Hætta er á því að í málum, bæði hjá lögreglu og fyrir dómstólum, þar sem notast er við fjarfundabúnað geti af ýmsum sökum orðið réttarspjöll með þeim afleiðingum að mál tefjist, þeim verði heimvísað eða þau hreinlega eyðileggist á síðari stigum.
Hér er um heimildarákvæði að ræða og þá skyldi ætla að lögregla og dómarar taki þá ákvörðun hvenær ber að nota þennan búnað en ég tel að í þessu tilviki verði að vanda miklu betur til lagasetningar, hafa miklu meira samráð og gæta vel að hverju skrefi, ekki stökkva í svona veigamiklar breytingar í tilefni af faraldrinum. Þó að þetta sé heimildarákvæði og hafi skamman líftíma er hættan of mikil á að menn gangi of langt og fái þetta í hausinn aftur, þ.e. fái lögreglumálið sem til vinnslu er eða dómsmálið sem dæmt er á síðari stigum eyðilagt eða heimvísað eða það valdi töfum. Ég tel bara ekki hættandi á það þrátt fyrir þennan faraldur. Það er ekki á það hættandi, herra forseti.
Sakborningar og þolendur í sakamálum njóta mikilvægra réttinda sem nauðsynlegt er að séu tryggð í hvívetna. Þá telur minni hlutinn að þrátt fyrir að um heimildarákvæði sé að ræða séu ákvæðin ekki nægilega skýr um í hvers konar málum megi beita tilteknum rafrænum lausnum, en skýr afmörkun verði að liggja til grundvallar slíkri heimild eða slíkum heimildum. Ég sé ekki heldur fyrir mér hvenær þetta gæti átt við. Ég ætla þó ekki að útiloka að í einhverjum tilvikum gæti þetta átt við. Það gæti gengið að hafa yfirheyrslu vitnis, einhvers minni háttar vitnis, fyrir lögreglu og hugsanlega fyrir dómi í gegnum slíkan búnað. En hver ætlar að meta það? Jú, dómari. Hver metur svo gjörðir dómara eftir á? Æðri dómstóll. Hver metur verk lögreglu? Dómstólar. Þessi ferill getur alls staðar brotnað. Af hverju eigum við að hætta þessu hér og nú? Er þetta eitthvert vandamál? Yfirleitt eru rannsóknarlögreglumaðurinn, vitnið eða sakborningur staddir einir í herbergi, bara eins og við erum í þessum sal. Það er ekki meiri nálægð en það, ekki meira kraðak en það af fólki. Það er engin þörf, herra forseti. Engin þörf, bara áhætta.
Hvernig ætla menn að tryggja það að sakborningur eða ákærði eða vitnið fái fullnægjandi leiðbeiningar í gegnum símann? Hvernig ætla menn að meta viðbrögð viðkomandi í gegnum símann eða myndina, að hann hafi skilið hvað fram fer og hvað honum er leiðbeint um? Þetta er allt of áhættusamt, herra forseti. Hvers vegna eru menn að vaða með þetta fram núna? Þetta þarf að skoða miklu betur.
Enn fremur bendir minni hlutinn á stjórnarskrárvarinn rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar sem tryggður er með 70. gr. stjórnarskrárinnar. Af þeim rétti leiðir einnig meginreglan um milliliðalausa málsmeðferð, sem er auðvitað grundvallaratriðið sem ég var að tala um áðan. Minni hluti telur að sá réttur geti, í einhverjum tilfellum, verið fyrir borð borinn fari skýrslutaka fram í gegnum fjarfundabúnað. Dómari á að sjá sakborninginn, sjá vitnið, meta viðbrögð. Hann verður að vera í stakk búinn til að geta það, annars gæti það hugsanlega verið talið brot á reglunni um milliliðalausa málsmeðferð. Hann þarf að meta framburð vitna. Hvernig á hann að geta það í gegnum einhvers konar myndbandskerfi þar sem sést kannski bara hluti af sakborningum? Hver er staða verjanda? Á verjandi að vera með honum eða á þetta að vera heima hjá honum í svefnherberginu eða í fangelsinu? Hvar á þetta að fara fram? Er alveg sama hvar það verður? Geta önnur vitni verið nálægt án þess að dómari sjái? Þau gætu verið í næsta stól við hliðina án þess að það sjáist á myndinni. Hvernig á að tryggja að svo sé ekki, að þau geti haft áhrif á hann?
Það er fullt af svona spurningum sem á eftir að svara og er algjörlega ósvarað í þessu máli. Við erum að hlaupa allt of hratt af engu tilefni.
Við umfjöllun málsins benti Persónuvernd á að hvorki lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga né lög um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi gildi um dómstóla þegar þeir fara með dómsvald sitt. Notkun fjarfundabúnaðar við meðferð dómsmála sé á mörkum þess að teljast til framkvæmdar dómsvalds eða falla undir stjórnsýslu þess og yrði að taka af allan vafa í þeim efnum. Minni hlutinn vill taka undir framangreind sjónarmið Persónuverndar og telur að í 5. og 6. gr. frumvarpsins sé réttur til persónuverndar ekki tryggður með fullnægjandi hætti. Í ljósi alls framangreinds leggur minni hlutinn því til að 5. og 6. gr. verði felldar brott úr frumvarpinu.
Herra forseti. Í 7. gr. frumvarpsins er lagt til að heimild verði bætt við lög um skipti á dánarbúum o.fl., þess efnis að heimilt verði að taka fyrir mál í gegnum síma eða á fjarfundi. Þá er í 2. efnismálsgrein 7. gr. lagt til að heimilt verði að bjóða upp á rafræna meðferð mála fram til 1. október 2020. Í 8. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði til bráðabirgða að byggja á IX. kafla stjórnsýslulaga við miðlun upplýsinga og gagna í tengslum við umsókn eftirlifandi maka um leyfi til setu í óskiptu búi.
Minni hlutinn telur framangreindar breytingar óþarfar og vísar sérstaklega til umsagnar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar sem fram kemur að almennt sé ekki gert ráð fyrir formlegum fyrirtökum við skipti á dánarbúum. Þar kemur fram að afgreiðsla slíkra mála fari fram með samskiptum sem geti verið alls kyns, t.d. í síma, með tölvubréfum eða á fundum, allt eftir óskum aðila og eðli hvers máls. Enn fremur séu erindin afgreidd með þeim hætti að aðili óskar eftir samtali og mætir hjá sýslumanni með beiðni um leyfi til einkaskipta, erfðafjárskýrslu og fylgigögn eða önnur erindi sem hann þarf leiðbeiningar með. Þá mætir hann einfaldlega ef þess þarf. Minni hlutinn telur í ljósi þess sem að framan greinir ekki ástæðu til að setja sérstök ákvæði til bráðabirgða um þau samskipti og leggur til að 7. og 8. gr. frumvarpsins verði felldar brott.
Herra forseti. Í 10. og 12. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar til bráðabirgða á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu. Ákvæðin hafa sætt mikilli gagnrýni, bæði varðandi stöðu gerðarþola og af þeim sökum að ákvæðin væru óþörf og virðast aðallega hafa verið lögð gerðarbeiðendum til hagsbóta. Það er einkennilegt, herra forseti, að fara fram með slíka lagabreytingar í því ástandi sem nú er, vaxandi atvinnuleysi, þar sem atvinnuleysi mun fara upp fyrir allar tölur sem við höfum áður séð í þessu landi, og ætla sér á þeim tíma, illa undirbúið, að gera aðfarir og nauðungarsölur auðveldari fyrir lánastofnanir landsins.
Það er gott, herra forseti, að nefndin, eins og kom fram í framsögu hv. formanns hennar áðan, hefur afráðið að gera tillögu um að hluti þessara umdeildu ákvæða skuli felldur brott og styð ég það að sjálfsögðu. Fyrir hvern eru þessi ákvæði? Fyrir hvern er verið að vinna þarna? Ég hélt því fram í 1. umr. málið að ég myndi ekki styðja mál sem kæmu fram í því ástandi sem nú er sem væru hugsanlega til þess að auðvelda eða einfalda aðgerðir sem beindust að heimilum landsmanna. Ég myndi ekki styðja slíkt.
Í umsögn Arion banka við þetta frumvarp kemur einnig fram hvert viðhorf lánastofnana er. Með leyfi forseta, ætla ég að lesa nokkrar línur þar úr:
„Arion banki fagnar því að ráðuneytið skuli bregðast við þeim fordæmalausu aðstæðum sem uppi eru í þjóðfélaginu vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með því að liðka fyrir og stuðla að aukinni rafrænni stjórnsýslu. Bankinn styður lögfestingu frumvarpsins heils hugar …“
Menn bara klappa. Það var eins gott að við héldum vöku okkar. Hvað hefði ella gerst, herra forseti? Það átti að auðvelda aðfarir og nauðungarsölur á heimilum landsmanna, algerlega að óþörfu. [Kliður í þingsal.] Það var engin þörf. Ég get farið miklu nánar út í það hver þörfin var.
Það er alltaf fagnaðarefni, herra forseti, ef menn sjá að sér og hlusta á ráðherra sem reynsluna hafa. Óhætt er að segja að gagnrýni sú sem ég og þingmenn Miðflokksins höfðum uppi við 1. umr. málsins hafi kristallast síðar í viðbrögðum ýmissa umsagnaraðila. Ákvæðin voru hreinlega talin óþörf eins og m.a. kemur fram í umsögn sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar sem verklaginu er lýst nákvæmlega. Það virðist sem þeir sem sömdu frumvarpið hafi bara alls ekki kynnt sér hvernig framkvæmd þessara mála er hjá embættinu. Það var engin þörf, það var engin örtröð á skrifstofum sýslumanna. Þetta var ekki Covid-mál. Það kemur berlega fram í umsögnum.
Ég viðhafði þau orð, sem ég nota nú ekki oft, í 1. umr. að hér væri um handarbakavinnu að ræða. Ég get varla annað en endurtekið það við 2. umr. málsins að svo virðist vera. Eins og sagt var í mínu ungdæmi: Menn eru að gera þetta með öfugum afturklónum. Ef menn lesa umsagnirnar og upphaflega frumvarpið þá er þetta eiginlega hið hlægilegasta mál, herra forseti. Við eigum ekki að eyða tíma okkar á þingi í þessu ástandi, þar sem við þurfum að virða öll þessi mörk og fjölda inni í salnum, í að fjalla um svona, sérstaklega ekki eitthvað sem gæti snert heimili landsmanna og vandræði þeirra sem lenda núna í fjárhagskröggum vegna þess að þeir hafa misst atvinnu eða tekjur hafa lækkað verulega. Við eigum ekki, herra forseti, að vera hér til að vinna þau verk. Höldum vöku okkar áfram.
Hvað þarf til að koma svona breytingum á, rafrænni stjórnsýslu? Hvað þarf? Tæknin þarf auðvitað að vera fyrir hendi. Hún þarf að vera á staðnum. Hún þarf að virka. Auðvitað þarf samráð, það þarf að tala við embættin, stofnanirnar og þá sem að ætla sér að vinna við þessar rafrænu lausnir. Það þarf að tala við þá. Það þarf að vanda alla lagasetningu, vanda til hennar. Það er ekki sama hvernig þetta er orðað. Menn þurfa að hafa skilning á því sem þeir ætla að breyta og laga. Það þarf fjármagn. Það þarf að fylgja fjármagn til að hægt sé að hrinda breytingunum í framkvæmd. Það þarf að gæta að persónuverndarsjónarmiðum. Það þarf að gæta að réttindum gerðarþola og sakborninga og vitna. — Ég er búinn með tímann, ég trúi þessu varla. Ég er varla hálfnaður. Ég verð líklega að koma aftur upp.