breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið en það er þó rétt, miðað við þá dæmalausu ræðu sem hér var flutt, að það komi fram að þeir aðilar sem komu fyrir nefndina voru undantekningarlítið mjög ánægðir með þær breytingar sem í frumvarpinu felast, hvort sem um var að ræða saksóknara, lögmenn, lögreglu eða aðra slíka aðila. Þannig að lýsingin sem ráða má af ræðu hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar er í miklu ósamræmi við það sem fram fór í hv. allsherjar- og menntamálanefnd, svo það komi fram.