breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Herra forseti. Ég þakka, ekki þessa spurningu heldur ábendingu. Vissulega var ég ekki á fundum nefndarinnar og get ekki vitnað um þetta, enda gerði ég það ekki. Ég vitnaði til umsagnaraðila og las upp úr a.m.k. einni eða jafnvel tveimur umsögnum og á kannski eftir að lesa upp úr fleirum. Dæmalaus ræða — ég veit það ekki. Var þetta einhver tímamótaræða? Ég hélt ekki. Ég var bara að finna að því að hér væri verið að leggja fram illa undirbúið frumvarp þar sem lítið samráð var haft og algerlega án þess að nein þörf væri á því. Það voru aðallega þessi atriði. Voru þau dæmalaus? Það verður þá bara að vera svo.