breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Hæstv. forseti. Ég endurtek bara að að mínu mati var ræðan pínulítið dæmalaus því að mér finnst hún eiga við um eitthvert annað mál en það sem við erum hér með til umfjöllunar. Staðreyndin er sú að þeir aðilar sem komu fyrir nefndina voru, kannski með tveimur undantekningum, afskaplega ánægðir með frumvarpið og töldu að það væri til mikilla bóta.
Hvað varðar sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu er brugðist við sjónarmiðum sem komu fram í breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar. Varðandi persónuvernd var tekið til athugunar hvernig fara bæri með þær athugasemdir og þar sem um heimildarákvæði er að ræða held ég að menn þurfi ekki að hafa áhyggjur af þeim þáttum. Það er hins vegar rétt að það komi fram að mörg ákvæði frumvarpsins eru ætluð til bráðabirgða, til að bregðast við ástandi, og eðli málsins samkvæmt þegar verið er að bregðast við fordæmalausu ástandi til bráðabirgða er ekki tími til að fara í margra mánaða eða margra ára undirbúningsvinnu varðandi lagabreytingar. En menn eru meðvitaðir um þetta í nefndinni þannig að það sem þarf að taka til endurskoðunar verður tekið til endurskoðunar. En ég vek athygli á því að langflestir sem eiga að fara eftir þeim breytingum sem hér er verið að leggja til telja ekki þau vandkvæði eða þær hættur fólgnar í frumvarpinu sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason lætur í veðri vaka að séu fyrir hendi.