150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

722. mál
[15:00]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir athugasemdirnar. Í þessu var engin spurning, held ég, en hann viðhafði þau orð að það væri eins og ég væri að tala um eitthvert annað mál. Það er ekki rétt. Ég er búinn að rökstyðja mál mitt alveg frá upphafi. Ég hef rökstutt hverja einustu málsgrein sem ég hef farið með um frumvarpið sem við erum að ræða um. Ég er því ekki að tala um neitt annað mál. Ég get fullvissað hv. þingmann um að ég er að tala um þetta mál, ekkert annað. Ég vil líka benda hv. þingmanni á það að við styðjum fjölmargar greinar þessa frumvarps. Við erum ekki á móti rafrænum lausnum. Við erum bara á móti því að skotið sé inn greinum sem eru óvandaðar og liggja einhver staðar uppi í ráðuneyti og er draumur einhverra lánastofnana að koma að í þessu ástandi. Við erum á móti því og sem betur fer hefur okkur tekist að útrýma verstu ákvæðunum í þessu lagafrumvarpi, þá á ég við 10. og 12. gr. Ég er mjög ánægður með það og fagna því, herra forseti, að nefndin hafi ákveðið að hreinsa þessar greinar út úr frumvarpinu. Ég tel kinnroðalaust að það sé að hluta til árverkni okkar þingmanna að þakka.