breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér svokallað munnlegt nefndarálit. Ég skilaði ekki skriflegu nefndaráliti, kom mér ekki alveg til þess. Ég er nefnilega í þeirri bölvanlegu stöðu að vera að mestu leyti sammála meiri hlutanum og að restinni til sammála Miðflokknum. Ég get samt lagt til eitthvað af eigin skoðunum fyrir þingheim enda myndi ég varla stíga í pontu að öðrum kosti.
Það er ýmislegt sem má segja um þetta mál. Það fyrsta sem mætti segja er að það mætti byrja á því upp á nýtt. Markmið frumvarpsins er ágætt, að auka rafræna stjórnsýslu og gera fólki kleift að vera í samskiptum við ríkið og ríkisstofnanir í gegnum fjarfundabúnað. Það er jákvætt markmið sem ég styð heils hugar í þeim tilfellum þar sem það gengur upp. Það er hins vegar markmið sem ég hygg að ætti að líta á sem markmið frá upphafi en ekki sem viðbragð við neyðarástandi eins og þetta frumvarp er skýrt merki um. Það er í raun og veru ástæðan fyrir því að frumvarpið er jafn vafasamt og hefur komið í ljós í umræðunni. Nú vil ég ekki gera lítið úr því vegna þess að það er samið í flýti og það er ekkert leyndarmál, það kemur fram í samráðskafla greinargerðar þess að það er samið í flýti vegna neyðarástands. Það er algjör óþarfi að tala það eitthvað rosalega mikið niður en það breytir því hins vegar ekki að það hefur áhrif á hvernig frumvarpið er. Jafnvel þegar maður hefur góða ástæðu fyrir því að flýta sér hefur flýtirinn sömu neikvæðu áhrif á verkið og ef maður hefði ekki ástæðu til að flýta sér. Það er aldrei gott að flýta sér um of, jafnvel ekki þegar maður hefur góða ástæðu til þess. Það er alltaf betra að gera hlutina betur, a.m.k. með tilliti til gæða afurðanna. Svo getur verið að maður fallist á að draga úr gæðunum gegn því að koma verkinu áfram í tæka tíð vegna neyðarástands en eftir standa áhrifin á afurðina.
Samráðið við gerð þessa frumvarps var af þessari ástæðu lítið og óformlegt, eins og kemur fram í greinargerð. Það sést ekki síst á viðbrögðum sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í umsögn sem sú ágæta stofnun sendi inn. Ef við hugsum málið frá byrjun og veltum fyrir okkur hvernig ætti að gera þetta myndum við byrja á öðrum hluta. Við myndum ekki byrja á að skrifa frumvarp, samþykkja það og finna síðan út úr því hvernig það myndi ganga. Við myndum byrja á að spyrja þessar stofnanir hvað þær þurfi til að ná þeim markmiðum sem löggjafinn vill. Markmiðið með frumvarpinu er að koma til móts við þarfir þessara stofnana til að sinna sínum störfum í neyðarástandi á meðan markmiðið sem við stjórnmálamenn myndum vonandi vilja ná er að gera stjórnsýsluna þannig að borgarar þessa lands, og þótt víðar væri leitað, geti átt samskipti, sinnt skyldum sínum og sótt réttindi sín til íslenskra yfirvalda án þess að þurfa að mæta á staðinn holdi klæddir. Það tel ég eftirsóknarvert markmið.
Í grunninn finnst mér svolítið skrýtið að á þessum tímum þurfum við borgarar landsins að fara eitthvað annað til að gera þetta. Sem tæknimaður sé ég ekki alveg ástæðuna fyrir því, að því gefnu að búið sé nógu vel undir tæknilega innviði og undirstöður til að hægt sé að leysa það sómasamlega af hendi og að teknu tilliti til persónuverndar, jafnræðis aðila í málum og þess háttar. Það er vinna sem þyrfti fyrst að eiga sér stað. Ég velti fyrir mér hvort það sé tilefni til að leggja fram mál um að setja á fót starfshóp til að greina þetta eða eitthvað slíkt. Ég tel ekki tímabært að setja fram frumvarp með lausnum í þeim mæli sem ég tel heppilegan með löggjöf eins og er.
Að því sögðu get ég sagt að ég styð mestallt í frumvarpinu, með einstaka undantekningum, og fagna mjög breytingunum sem verða væntanlega gerðar í kjölfar meirihlutaálits nefndarinnar. Ég skýri það út þegar að atkvæðagreiðslum kemur. Ég er einnig sammála 1. minni hluta, þ.e. Miðflokknum, um að það þurfi að vanda til verka. Það á að gera það og það er hætta á því að gera þessa hluti illa, það er hægt klúðra góðum málstað, sérstaklega ef menn flýta sér of mikið. Það er mjög mikilvægt vegna þess að hérna erum við að tala um hluti eins og réttaröryggi. Það að vitni sé einsamalt skiptir t.d. verulegu máli. Nú gætu meirihlutaþingmenn komið hingað og sagt, og það væri alveg rétt hjá þeim, að þetta sé heimildarákvæði og verði væntanlega ekki nýtt að því gefnu að þetta þyki ekki vandamál við þær aðstæður. Þetta er samt dæmi um það sem þarf að hugsa til enda að mínu mati í miklu stærra samhengi, ekki bara út frá lögum um einkamál og sakamál og þau 13 ákvæði sem eru í frumvarpinu heldur almennt út frá sambandi borgarans við yfirvöld.
Mér finnst í grunninn að það eigi að vera hægt að gera svo gott sem allt heiman frá sér í samskiptum við ríkið, ekki alveg allt, ekki vitnaleiðslur eða eitthvað því um líkt, en langflest. Mér finnst alltaf pínu skrýtið að þurfa að fara í einhverja stofnun og skila inn pappírum. Það eru svo sem ekki sjálfstæð rök að árið í ár sé 2020 en það er 2020 og við hefðum getað verið komin lengra fyrir þó nokkru síðan. Það er ekki bara að nútíminn bjóði upp á þetta. Fortíðin bauð upp á það og hefur gert í dágóðan tíma. Ástæðan fyrir því að Píratar eru á þingi er sú að tæknin þróast ofboðslega hratt, samfélagið aðeins hægar og yfirvöld langhægast. Það er svo sem ekki ný saga, reyndar ekki við öðru að búast, sérstaklega þegar kemur að lýðræðislegum ferlum sem fela í sér miklar umræður og skoðanir hjá umsvifamiklum ríkisstofnunum og auðvitað hinu háa Alþingi.
Ég verð að nefna nokkrar greinar frumvarpsins, 5., 6., 10. og 12. gr. Ég ætla fyrst að fara yfir 5. og 6. gr. og kynna breytingartillögu sem ég hef lagt fram ásamt hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, fulltrúa Miðflokksins í allsherjar- og menntamálanefnd. Hún snýr að því að innleiða tillögur sem komu frá Persónuvernd og snerta 5. og 6. gr. frumvarpsins en þær greinar fjalla um málsmeðferð í lögum um meðferð sakamála og lögum um meðferð einkamála. Persónuvernd var með þá ábendingu að hún vildi setja inn aukamálsgrein sem tæki af tvímæli um það hvaða lög giltu um notkun fjarfundabúnaðar hjá dómstólum. Meiri hlutinn taldi það óþarft af ástæðum sem hann hefur útskýrt hér. Ég er ósammála því. Mér finnst fínt að hafa þetta inni. Ef maður flettir upp þeim greinum og köflum sem Persónuvernd leggur til sér maður að þetta eru frekar mikilvæg atriði. Ég er ekki þeirrar skoðunar að þau séu of umsvifamikil til að dómstólar geti tekist á við þau, ekki síst vegna þess að persónuvernd á í dag að vera svolítið sjálfgefin, samkvæmt lögum og því sem við eigum að ætlast til af stofnunum ríkisins. Dómstólar eiga alveg að geta fylgt persónuverndarlögum og það á ekki að vera eitthvert vandamál. Þeir eiga að vera með verklag til staðar nú þegar, þeir eiga að hafa þekkinguna sem þarf og vinnulagið sem þarf til að geta uppfyllt þau lagaákvæði sem Persónuvernd leggur til að bætt verði inn. Ég er bara, með fullri virðingu, ósammála því að þetta myndi þvælast mikið fyrir dómstólunum. Ef það myndi gera það tel ég það vera sjálfstætt vandamál sem beri að taka á með því að setja inn þessi ákvæði. Þess vegna legg ég það til ásamt hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.
Þá þarf aðeins að ræða 10. og 12. gr. sem hafa verið mikið til umræðu. Strax á fyrstu stigum málsins við 1. umr. var komin umsögn frá Hagsmunasamtökum heimilanna eins og þeirra er von og vísa, þau skila umsögnum inn mjög snemma sem er að mínu mati mjög jákvæður siður. Það kemur umræðunni oft mjög hratt að punktum sem er gott að komi í ljós strax en ekki einhvern tímann síðar í ferlinu. Þau benda á, með réttu að mínu mati, að 10. og 12. gr. feli í sér leiðir til að nýta fjarfundabúnað sem myndu hygla hagsmunum gerðarbeiðenda í aðförum og nauðungarsölum umfram hagsmuni gerðarþola.
Nú er búið að fjarlægja þá hluta frumvarpsins samkvæmt nefndaráliti meiri hlutans sem er gott en ég get ekki látið vera að minnast aðeins á það sem veldur mér vonbrigðum í sambandi við umræðuna, skýringarnar á því að 1. mgr. í 10. gr. og 1. mgr. í 12. gr. eru felldar brott. Þær eru ekki að ríkið hafi gleymt að pæla í því. Þótt aðfarir og nauðungarsölur séu eðlilegur hluti af störfum kerfisins má ekki líta svo á að allar nauðungarsölur og allar aðfarir séu sjálfkrafa lögmætar. Gerðarþoli hefur andmælarétt, hann hefur eitt tækifæri til að koma þeim andmælum á framfæri og það er á þeim stað sem varðar þessar greinar. Þegar tæknin er nýtt til að gera gerðarbeiðendum lífið auðveldara en ekki samtímis gerðarþolum kemur það niður á jafnræði aðila í því máli. Það er slæmt og ég held að það vilji enginn en umræðan frá hæstv. ráðherra og meiri hlutanum hefur verið meira í þá veru að þetta sé í raun og veru óþarfi. Mér finnst þau ekki taka á þessu atriði. Mér finnst mikilvægt að hafa þetta í huga og viðurkenna það þótt það hafi engin önnur efnisleg áhrif á frumvarpið þar sem ákvæðin eru sem betur fer fjarlægð.
Þetta vekur líka upp spurninguna um markmið frumvarpsins. Markmiðið ætti að mínu mati að vera að einfalda hlutina fyrir borgarana í samskiptum við ríkið. Mér finnst það sjálfstætt markmið, burt séð frá Covid-19 og öllu öðru. Markmiðið er að auðvelda þessum stofnunum að starfa. Með því að einblína á það hafa yfirvöld gleymt, sennilega sökum flýtisins, að athuga að þetta snýst ekki bara um stofnanirnar sjálfar, þetta snýst líka um skjólstæðinga stofnananna sem eru m.a. gerðarbeiðendur og gerðarþolar. Það er lexía til að læra af sem ég vona að menn hafi dregið lærdóm af. Þess vegna finnst mér leiðinlegt að heyra svona villandi skýringar frá hæstv. ráðherra um það hvers vegna þessu er breytt svona. Hugsanlega er ósanngjarnt að kalla það villandi en mér finnst ósanngjarnt að kalla þessa gagnrýni minni hlutans misskilning. Hún er ekki misskilningur. Við erum bara svo heppin að hvort sem hún er misskilningur eða ekki er orðið við þessari beiðni þó að á öðrum forsendum sé.
Þetta vekur upp umræðu um að fresta öllum aðfarargerðum og nauðungarsölum. Það hefur verið gert annars staðar, t.d. í Bandaríkjunum. Sú umræða hefur verið lágstemmd á Íslandi af einhverjum ástæðum, sem mér finnst skrýtið miðað við hvað umræðan um efnahagsmál, nauðungarsölur, verðbólgu og verðtryggingu og allt það er jafnan hávær, sér í lagi á tímum sem þessum. Það er nokkuð sem við ættum að skoða en að því sögðu verð ég að segja að það fer svolítið út fyrir efni þessa tiltekna frumvarps. Þetta er kannski ekki rétti tíminn til að ræða það eða vera með einhverjar svakalegar tillögur um það vegna þess að það er mál sem ætti að búa um á forsendum þeirrar hugmyndar einnar og sér. Ég veit að margir þingmenn eru þeirrar skoðunar að það eigi að fara þá leið og eflaust eru fleiri en einn með slíkar tillögur í bígerð eða hafa hreinlega þegar lagt þær fram.
Virðulegur forseti. Ég held að þessu sé lokið hjá mér, a.m.k. í bili. Ég kem til með að gera nánari grein fyrir atkvæði okkar þegar að atkvæðagreiðslu kemur, við erum á græna takkanum í sumu, á gula í öðru, eins og sagt er. Það þýðir að við styðjum sum ákvæðin og önnur ekki, ekki endilega vegna þess að við séum á móti þeim heldur vegna þess að frumvarpið ber öll merki þess að það mætti vinna betur. Sömuleiðis eru spurningar sem er ekki endilega svarað.
Það er reyndar eitt atriði hér sem ég verð að fara inn á. Það varðar orðalagsbreytingu sem ég hjó eftir í breytingartillögu meiri hlutans, í d-lið 3. töluliðar tillögunnar á þskj. 1273. Þar er orðalag um að það sé krafa um að „allir“ heyri þinghöld í sakamálum breytt í að „allir viðkomandi aðilar“ heyri þinghöld. Þetta snertir meginregluna um opin þinghöld í réttarkerfinu, í sakamálum og einkamálum og að einhverju leyti við skiptingu dánarbúa, a.m.k. þegar til dómstóla er komið. Þetta var ekki rætt í nefndinni svo ég hafi tekið eftir. Ég var reyndar ekki viðstaddur einn fund, þá var varamaður í minn stað. Ég fann ekki umfjöllun um þetta í nefndarálitinu og hef ekki heyrt neina umræðu um það, rak bara augun í þetta við skoðun í gær. Þetta er dæmi um eitthvað sem maður hefði viljað hafa á hreinu og verður kannski á hreinu þegar við komum til 3. umr. Mér finnst þurfa að svara því hvað nákvæmlega „allir viðkomandi aðilar“ þýðir. Hverjir eru viðkomandi aðilar? Ef þetta er opið þinghald, er það þá almenningur eða eru það bara aðilar sem málið varðar? Það væri fínt að hafa það á hreinu. Ég spurði mér lögfróðara fólk út í þetta og það hafði ekki miklar áhyggjur af þessu en gat tekið undir að betra væri að hafa þetta skýrt, vel skilgreint og passa að þarna komi ekki upp óþarfar spurningar sem geti tafið fyrir málum eða búið til óþörf leiðindi.
Að þessu sögðu lýk ég máli mínu, virðulegi forseti, og kem að nánari efnisumfjöllun um atkvæði mín og Pírata þegar að atkvæðagreiðslu kemur.