breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Forseti. Ég tók þátt í 1. umr. um málið áður en það fór til nefndar og fór yfir umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um málið og það sem þau lögðu áherslu á að yrði lagað í meðferð nefndarinnar. Ég átti orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra sem tók undir að bæði gerðarbeiðendur og gerðarþolar ættu að sjálfsögðu að sitja við sama borð og allt slíkt. Ég hafði aftur samband við Hagsmunasamtök heimilanna og spurði hvernig þeim litist á málið eins og það kemur út úr nefndinni til að vera viss um að sjónarmiðum þeirra hefði verið fylgt eftir. Í praxís er þeim fylgt eftir þó að aðrar ástæður hafi verið gefnar fyrir þeirri lendingu. Niðurstaðan er sú að Hagsmunasamtök heimilanna eru að langmestu leyti sátt við þessa lendingu. Þetta eru þau samtök sem hafa allt frá hruni barist hvað ötulast fyrir hagsmunum heimilanna þegar gengið er að þeim með nauðungarsölum og heimilin svipt eignum með aðför.
Nú hefur Helgi Hrafn Gunnarsson lokið máli sínu og farið yfir vinnslu sína á málinu í nefndinni þannig að ég held að við getum bara nokkuð sátt við unað. Ég þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir að lenda málinu á þeim stað sem langflestir virðast geta unað sáttir við.