Matvælasjóður.
Herra forseti. Já, það kom alveg skýrt fram af hálfu ráðuneytisins að þessir peningar færu í vinnu strax, umsóknir gætu komið í kjölfarið á því að þetta mál yrði samþykkt hérna, strax yrði skipuð stjórn og að vegna mikillar undirbúningsvinnu í ráðuneytinu í marga mánuði í þessu máli — við þekkjum það að málið kom til þingsins á síðasta ári og fékk umfjöllun þá svo að þetta er ekkert nýtt — væri hægt að fara að kalla eftir umsóknum strax og úthluta í haust.
Varðandi Framleiðnisjóð landbúnaðarins kom það fram í þeirra máli að þau myndu halda áfram að taka við umsóknum eins og er. Sjóðurinn er ekki lagður niður fyrir næstu áramót svo að ég sé ekki að það ætti að skarast neitt, heldur hafi sjóðurinn tækifæri til þess að afgreiða þær umsóknir sem eru komnar inn og annað, það ætti ekki að koma rof í því. Hann klárar bara sín verkefni á þessu ári án þess að það skarist við nýjan sjóð, eins og ég skil þetta. Sá sjóður verður sem sagt lagður niður um næstu áramót. Það voru til lög um þann sjóð frá 1966, þetta er gamall sjóður og virðulegur, en það var ekki neinn lagagrundvöllur fyrir AVS-sjóðnum, það þurfti þess ekki, hann var ekki stofnaður þannig svo að hann lýtur öðrum lögmálum og rennur bara strax inn í þennan nýja sjóð.
Við fylgjumst grannt með því í atvinnuveganefnd hvernig til tekst og höldum öllum við efnið í þeim málum því að hugurinn er sá sami; að koma þessum peningum sem best í vinnu í nýsköpun og þróun og aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu í ólíkum matvælageirum sem fyrst.