150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[16:24]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég tek hér til máls um frumvarp er varðar stofnun Matvælasjóðs. Ég tel að þetta sé akkúrat rétti tíminn til að ljúka þessu mikilvæga máli. Það kom fyrir þingið á síðasta ári og þá fékk það samtals 54 atkvæði, nánast allur þingheimur studdi þessa leið. Ætlunin er að leggja til nýjar 500 millj. kr. í nýsköpun og þróun matvælaframleiðslu í sjávarútvegi og landbúnaði. Það kemur fram í frumvarpinu, virðulegur forseti:

„Við úthlutun styrkja úr sjóðnum verður sérstök áhersla lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og aðgerðir til að efla samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Sjóðnum mun einnig vera heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum.“

Ég veit til þess að bæði AVS-sjóðurinn og Framleiðnisjóður hafa líka styrkt verkefni er snúa að vinnslu hráefna í lyfja-, orku- og heilsuvöruframleiðslu, þannig að það er vítt svið sem sjóðnum er opið. Ég held að með því að sameina þessa sjóði muni sú góða hefð og reyndar hin góða staða landbúnaðarins, með framleiðslu á vörum fyrir heimamarkað að mestu leyti, sýna að landbúnaðurinn er töluvert á undan sjávarútvegi með framleiðslu á vörum í neytendapakkningum. Ég held að það muni koma í ljós að landbúnaðurinn muni ekki þurfa að hafa áhyggjur gagnvart því að sjávarútvegurinn, sem er afar sterk grein, muni yfirtaka þennan sjóð. Öðru nær, ég held að sú reynsla og þekking sem hefur skapast í landbúnaði, sú reynsla og þekking sem býr í framleiðslu landbúnaðarafurða, muni með þessum sjóði og því samstarfi sem þar verður nýtast sjávarútvegi. Það er mikil gróska í sveitunum. Við tökum eftir því núna að í Ölfusinu er verið að stofna þekkingarsetur þar sem matvælaframleiðsla verður í öndvegi. Það er verið að ráða verkefnisstjóra til þess verkefnis. Þar eru stórir hlutir að fara í gang í framleiðslu, í fiskeldi og garðyrkju, þannig að það er mjög mikið að gerast.

Ég verð að segja eins og er um þá þingsályktunartillögu sem upphaflega var lögð fram, um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi, og þau okkar sem höfum úr þessum stól talað fyrir framleiðslu landbúnaðarafurða og matvælaöryggi í þessu landi, að það þótti ekki mjög fín umræða fyrir nokkru síðan. Við sem töluðum fyrir því úr þessum stól vorum næstum því púuð niður. Ef ég man rétt var það árið 2016 sem einungis 16 þingmenn sem greiddu búvörusamningum atkvæði. Það var algjör minni hluti þingsins í rauninni sem stóð við bakið á bændum þegar þeir búvörusamningar voru samþykktir sem áttu að tryggja matvælaöryggi og fæðuöryggi landsins. Nú er öldin önnur en það þurfti mikið fall til þess. Þær hörmungar sem hafa dunið yfir okkur og auðvitað heiminn allan hafa orðið til þess að nú þykir matvælaöryggi mjög nauðsynlegt, ákall nánast allrar þjóðarinnar er eftir matvælaöryggi. Við sem höfum talað fyrir því lengi fögnum þeim liðsauka mjög mikið.

Það eru auðvitað kostir og gallar að búa í litlu eyríki. Það er oft miklu dýrara. En hvað höfum við fengið út úr því í staðinn? Við höfum haft heilnæmi, við þurfum ekki að hræðast sýklaónæmi, hluti sem við erum að heyra í fréttum daglega núna, alls konar ónæmi gegn lyfjum sem er óþekkt á Íslandi. Ég segi þetta vegna þess að Matvælasjóður mun taka utan um það umhverfi sem við viljum styrkja og styðja. Í atvinnuveganefnd hefur margoft komið fram mikill vilji og áhugi fyrir því að auka störf til sveita. Heimaslátrun og framleiðsla beint frá býli eru hlutir sem fjölmargir þingmenn hafa talað fyrir og tekið undir að verði að veruleika og að það skapi störf í hinum dreifðu byggðum, eins og kom fram í ágætri ræðu hv. þm. Birgis Þórarinssonar áðan. Þar erum við algerlega sammála. Við höfum líka verið sammála Miðflokknum í því að einfalda reglugerðir og kerfið, fækka sjóðum. Við erum kannski sammála þar til kemur að því að gera það. En við munum standa vörð um landbúnaðinn, það er algerlega klárt.

Ég vil að lokum þakka fyrir fínar umræður um málið, bæði í nefndinni og í þinginu. Það er mikilvægt að allt sem hér hefur verið sagt komi fram. Við erum að styrkja byggðastefnu með þessu máli. Ég tek undir það sem formaður atvinnuveganefndar, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir sagði áðan, þetta er auðvitað landsbyggðarmál og staðsetning þessa sjóðs er landsbyggðarmál og við munum standa vörð um það. Við munum fylgja eftir þeirri miklu grósku sem er á landsbyggðinni í uppbyggingu matvælaiðnaðar til að tryggja matvælaöryggi fyrir íslenska þjóð og þá veljum við íslenskt.